SKÝRSLAN: Leiknir með tvo sigra í röð og eru komnir í gang
Hvað réði úrslitum?
Mjög leiðinlegur fyrri hálfleikur sem einkenndist af stoppum og hornspyrnum. Síðari hálfleikurinn byrjaði rólega líkt og sá fyrri en Völsungur náði að brjóta ísinn um miðjan síðari hálfleik. Leiknismenn sýndu karakter og komu til baka og skoruðu þrjú mörk í síðustu tuttugu mínútur leiksins.
Bestu leikmenn
1. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R)
Dagur Ingi Hammer gerði gríðarlega vel í síðari hálfleik og skoraði tvö mörk á síðustu tíu mínútum leiksins og tryggði Leiknismönnum þessi þrjú stig.
2. Axel Freyr Harðarson (Leiknir R)
Axel Freyr var líflegastur Leiknismanna í dag að mínu mati og gerði svo afskaplega vel í þriðja markinu þegar hann laggði upp á Dag Inga Hammer.
Atvikið
Fyrsta markið sem kveikti í leiknum þegar Rafnar Máni fékk boltann inn á teig Leiknis og skorað að miklu öryggi.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknir lyfta sér upp töfluna eftir slæma byrjun og stendur liðið núna í 9 sæti deilarinnar með sjö stig. Völsungur er í áttunda sæti deildinnar með 9.stig.
Vondur dagur
Enginn eitthvað slakur í dag en að fá á sig þrjú mörk er aldrei gott sem markvörður og Ívar Arnbro Þórhallsson í marki Völsungs þurfti að sækja boltann þrisvar í sittt eigið mark í dag.
Dómarinn - 6
Jóhann Ingi og hans menn voru bara ágætir í dag. Spurning með brot í aðdraganda marks númer tvö sem Leiknir skoraði.



