Isak til Liverpool og Sesko til Newcastle - Aston Villa segir nei við United - Bayern ætlar sér að fá Díaz
Lengjudeild karla
Fylkir
82' 3
2
Fjölnir
Lengjudeild karla
ÍR
79' 2
1
Njarðvík
Lengjudeild karla
Grindavík
79' 1
2
Þróttur R.
Lengjudeild karla
HK
81' 1
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Keflavík
LL 2
2
Þór
Besta-deild kvenna
Víkingur R.
LL 2
1
Stjarnan
Besta-deild kvenna
FH
LL 3
1
Fram
Valur
2
1
FHL
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir '1 1-0
1-1 Taylor Marie Hamlett '24
Fanndís Friðriksdóttir '63 2-1
24.07.2025  -  19:00
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta-deild kvenna
Dómari: Bríet Bragadóttir
Áhorfendur: 189
Maður leiksins: Fanndís Friðriksdóttir
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
5. Bryndís Eiríksdóttir
6. Natasha Anasi ('33)
7. Elísa Viðarsdóttir (f)
10. Berglind Rós Ágústsdóttir
14. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir
27. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('60)
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir
30. Jordyn Rhodes ('60)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
20. Björk Björnsdóttir (m)
3. Sóley Edda Ingadóttir
9. Jasmín Erla Ingadóttir ('60)
13. Nadía Atladóttir
16. Elín Metta Jensen ('60)
17. Arnfríður Auður Arnarsdóttir
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir ('33)
24. Auður Björg Ármannsdóttir
26. Ása Kristín Tryggvadóttir
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Kristján Guðmundsson (Þ)
Arna Sif Ásgrímsdóttir
María Hjaltalín
Fjalar Þorgeirsson
Anna Sóley Jensdóttir
Jónas Breki Kristinsson

Gul spjöld:
Elín Metta Jensen ('70)
Elísa Viðarsdóttir ('83)
Jasmín Erla Ingadóttir ('83)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur klárar þennan leik á reynslunni 2-1

Fanndís réttur maður á réttum stað og kláraði þetta fyrir Val. FHL gáfu þó ekkert eftir og áttu alveg sín færi í þessum leik, hefðu með smá heppni getað jafnað.

Valskonur væntanlega mjög fegnar að taka stigin 3 í kvöld! FHL hins vegar enn á botninum án stiga

Takk fyrir mig í kvöld! Skýrsla og viðtöl koma inn seinna í kvöld
93. mín
FHL fá horn, líklega síðasti séns? En Tinna enn og aftur grípur hann
92. mín
FHL með ágætis tilraun en Tinna grípur þetta
90. mín
Uppbótartími a.m.k. 2 mínútur
86. mín
Brookshire með hörkuskot en Tinna ver
83. mín Gult spjald: Jasmín Erla Ingadóttir (Valur)
83. mín Gult spjald: Elísa Viðarsdóttir (Valur)
80. mín
Fæææææriiii Vá aukaspyrna sem kemur inn í en boltinn rétt framhjá
80. mín
Skyndisókn hjá FHL, Björg þeysist fram setur boltan svo til hliðar þar sem Taylor mætir og reynir skot en boltinn framhjá
78. mín Gult spjald: Calliste Brookshire (FHL)
Fær spjald fyrir að hefna sín, vildi fá brot rétt áður
77. mín
FHL eru alls ekki hættar, Brookshire með hættulega fyrirgjöf, Valskonur heppnar að engin nær til boltans
77. mín
Stunga inn á Fanndísi en Terrell vel vakandi og hirðir boltan á undan Fanndísi
76. mín
Inn:Ólína Helga Sigþórsdóttir (FHL) Út:Candela Gonzalez Domingo (FHL)
76. mín
Inn:Íris Vala Ragnarsdóttir (FHL) Út:Rósey Björgvinsdóttir (FHL)
73. mín
Fanndís með aukaspyrnu, alls konar vesen í teignum en svo fer flaggið á loft fyrir rangstöðu
70. mín Gult spjald: Elín Metta Jensen (Valur)
Heldur Rósey fyrirliða FHL sem fær síðan boltann og olnbogan? beint í andlitið
69. mín
Inn:Christa Björg Andrésdóttir (FHL) Út:Mikaela Nótt Pétursdóttir (FHL)
68. mín
Jasmín brýtur, aukaspyrna sem Candela tekur, Brookshire nær þessu svo og á flotta fyrirgjöf sen hún rennur í gegnum allan pakkann, hættulegt færi
67. mín
Fanndís tekur aukaspyrnu en Valskonur svo dæmdar rangstæðar, klaufalegt
66. mín Gult spjald: Alexia Marin Czerwien (FHL)
64. mín
Isabelle með fyrirgjöf en Tinna nær að grípa þennan
63. mín MARK!
Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Fanndís kann þetta, fær boltann á góðum stað í teignum og setur hann í hornið framhjá Terrell
62. mín
Björg búin að vera spræk hjá FHL, á hér flott skot en yfir
60. mín
Inn:Elín Metta Jensen (Valur) Út:Jordyn Rhodes (Valur)
60. mín
Inn:Jasmín Erla Ingadóttir (Valur) Út:Helena Ósk Hálfdánardóttir (Valur)
59. mín
úúúúffff Björg sloppin ein í gegn en flaggið á loft
58. mín
FHL þeyttast upp völlinn en Málfríður brýtur, aukaspyrna sem Candela tekur en boltinn beint í fangið á Tinnu
57. mín
Fanndíííís Fanndís með alvöru takta, keyrir inn í teiginn og á svo gott skot sem Terrell þarf að hafa sig alla við að verja
56. mín
Hendi dæmd á Katrínu sem Helena tekur fyrir Val, stutt á Bryndísi
55. mín
Elísa með ágætis tilraun fyrir Val en boltinn yfir og framhjá
52. mín
Björg kemst upp með boltann en Valskonur vel á verði og ná honum útaf við litla hrifningu áhorfenda FHL, kalla hér brot en mýr sýndist þetta bara vera boltinn
47. mín
Isabelle tekur aukaspyrnu fyrir gestina og setur hann fram en ekkert kemur út úr þessu
46. mín
Markaskorarinn Taylor sparkar seinni hálfleik af stað fyrir gestina
45. mín
Hálfleikur
Staðan er hér 1-1 í hálfleik

Valur byrjarði leikinn heldur betur af krafti og skoraði Ragnheiður strax á 1. mínútu en FHL vann sig inn í leikinn og nýi leikmaður þeirra Taylor opnaði markareikning sinn hjá félaginu og jafnaði leikinn 1-1.

Ég sé fram á skemmtilegan og spennandi seinni hálfleik! Ætla nýliðarnir að sækja sín fyrstu stig á Hlíðarenda? Eða ætla að Valskonur að girða sig í brók?
45. mín
Kolbrá tekur skot langt fyrir utan teig en skotið bæði hátt yfir og framhjá
45. mín
Brookshire þeytist upp völlinn og á svo fyrirgjöf en Tinna vel á verði í markinu og grípur hann. FHL hafa veið mun sprækari hérna síðustu mínúturnar
45. mín
Bríet dómari fær boltann í sig, dómarakast sem Berglind tekur
43. mín
Helena með aukaspyrnu, FHL konur koma þessu frá og svo brotið á þeim í kjölfarið
41. mín
Björg með ágætis skot en heldur laust og Tinna í markinu grípur hann
40. mín
Brookshire á frábæra stungu inn á Taylor en hún nær ekki alveg til boltans og hann rúllar afturfyrir en frábær tilraun þarna hjá FHL
36. mín
Hrafnhildur brýtur á Fanndísi, aukaspyrna sem Málfríður tekur stutt á Tinnu
34. mín
Jordyn með ágætis tilraun en yfir markið
33. mín
Inn:Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur) Út:Natasha Anasi (Valur)
Fyrsta skipting leiksins, engir sénsar teknir og Natasha fer af velli
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Natasha og Alexia liggja hér eftir, Alexia haltrar í burtu en Natasha fær aðhlynningu frá sjúkraþjálfara
29. mín
Greinilega vel mætt hér að austan, hér heyrist bara "FHL" í stúkunni
Grunar að hér séu krakkar af Reycup mættir að styðja sínar konur
28. mín
Brookshire tekur aukaspyrnu en hún var alveg afspyrnuléleg og boltir rúllar afturfyrir
24. mín MARK!
Taylor Marie Hamlett (FHL)
Taylor Marie gerir vel í að fylgja eftir, Valskonur voru í allskonar veseni og Taylor potar honum fram hjá Tinnu Brá
23. mín
Þetta var skrítið, Elísa undir pressu á síðan lélega sendingu á Tinnu sem tæklar hann útaf
18. mín
Jordyn keyrir inn á völlinn og á svo skot eða fyrirgjöf? en boltinn allavega yfir allan pakkann og vel framhjá
16. mín
Brookshire með ágætis tilraun en Tinna Brá á ekki neinum vandræðum með þennan bolta
14. mín
Elísa með stungu upp á Jordyn en þar er Rósey mætt
11. mín
Taylor Marie nær i horn fyrir FHL sem Candela Gonzalez tekur Valskonur ná þó að lokum að skalla frá
10. mín
Jordyn fær bolta upp í horn en réttilega dæmd rangstæð
9. mín
Terrell kemur vel úr marki FHL og handsamar boltann, þetta hefði getað orðið hættulegt
7. mín
Rósey fyrirliði FHL með góðan bolta úr vörninni upp á Björgu sem tekur hann með sér, nær hins vegar ekki að senda á samherja og Valskonur stela honum
6. mín
Fanndís með ágætis fyrirgjöf en FHL ná að koma boltnaum frá í þetta skiptið
1. mín MARK!
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir (Valur)
Stoðsending: Jordyn Rhodes
Þetta var ekki lengi gert! Jordyn Rhodes með góðan bolta fyrir þar sem Ragnheiður mætti og stangaði hann inn
1. mín
Leikur hafinn
Jordyn Rhodes sparkar þessu af stað fyrir Valskonur
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár Matthías og Kristján gera engar breytingar á liði Vals frá 1-2 sigurleiknum gegn FH í síðustu umferð, fyrir EM hlé.

Björgvin Karl Gunnarsson og Ljubisa Radovanovic þjálfarar FHL gera hins vegar 3 breytingar á sínu liði frá 1-4 tapi gegn Tindastól í sínum síðasta leik fyrir EM hlé. Inn í liðið koma nýju leikmenn FHL, Candela Gonzalez, Taylor Marie og Isabelle Rose í stað Írisar Völu, Christu Björg og Hope Santaniello
Fyrir leik
Valskonur hafa valdið vonbrigðum á tímabilinu og væntanlega nýtt landsleikjahléið vel í að skerpa á spilinu. Ef það smellur þá vinna þær sannfærandi og -3.5 á Valskonur á Epic er á stuðlinum 2.50
Fyrir leik
Spámaður 11. umferðar Bestudeildar kvenna Margrét Lára Viðarsdóttir, ein besta fótboltakona Íslands frá upphafi, spáir í leiki umferðarinnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Valur 4 - 0 FHL
Valskonur eru ekki sáttar með fyrri hluta tímabils hjá sér og koma því mjög öflugar inn í þennan leik. Því miður fyrir FHL þá fá þær ekki sín fyrstu stig að Hlíðarenda í deild þeirra Bestu þetta árið. Valur vinnur öruggan 4-0 sigur. Gömlu kempurnar Fanndís og Elísa verða með sitthvort markið. Hlakka til að sjá Málfríði Önnu aftur í Valstreyjunni, vonandi mun hún setja mark sitt á leikinn.


Sjá nánar hér

Fyrir leik
Liðin Valur og FHL mættust síðast í Fjarðabyggðarhöllinni 21. apríl þar sem Valur fór með sigur af hólmi 0-2. Gengi beggja liða hefur verið nokkuð brösulegt í fyrrihlutanum og ég geri ráð fyrir að bæð lið ætli að sýna sig hér í kvöld!


Valur

Valur situr í 6. sæti deildarinnar með 12 stig, jafnmörg stig og Stjarnan sem situr í 7. sæti.
Fyrrihlutinn hefur reynst Valskonum ansi erfiður en þær hafa einungis unnið 3 leiki og gert 3 jafntefli. líklega hefur fáum hefur dottið í hug fyrir tímabil að Valur yrði ekki í toppbaráttu.

Valur vann síðasta leik sinn fyrir EM hléið gegn FH og þær hljóta að vilja snúa við gengi sínu í fyrrihlutanum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



FHL

FHL situr í 10. og neðsta sæti deildarinnar með 0 stig.
Þær hafa tapað öllum sínum leikjum í fyrrihlutanum en hafa þó alveg staðið í öllum liðunum. Fyrrihlutinn hefur því reynst þeim líkt og Val ekki vel.

Síðasti leikur þeirra fyrir EM hléið var gegn Tindastól þar sem þær töpuðu 1-4 á heimavelli. Þær ætla væntanlega breyta um stefnu í seinni hlutanum og hafa þær fengið 3 nýja leikmenn til liðs við sig sem spennandi verður að sjá hvernig kemur út!


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarar kvöldsins Á flautunni í kvöld verður Bríet Bragadóttir og henni til halds og traust verða Rúna Kristín Stefánsdóttir og Jovan Subic aðstoðardómarar.

Eftirlitsmaður er Jón Magnús Guðjónsson og varadómari í kvöld er Hallgrímur Viðar Arnarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals gegn FHL á N1-vellinum á Hlíðarenda, Leikurinn hefst á slaginu 19:00!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Keelan Terrell (m)
4. Rósey Björgvinsdóttir (f) ('76)
7. Candela Gonzalez Domingo ('76)
8. Katrín Edda Jónsdóttir
13. Taylor Marie Hamlett
14. Alexia Marin Czerwien
15. Björg Gunnlaugsdóttir
16. Mikaela Nótt Pétursdóttir ('69)
21. Isabelle Rose Gilmore
22. Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir
24. Calliste Brookshire
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Embla Fönn Jónsdóttir (m)
3. Íris Vala Ragnarsdóttir ('76)
5. Diljá Rögn Erlingsdóttir
11. Christa Björg Andrésdóttir ('69)
17. Viktoría Einarsdóttir
18. Ásdís Hvönn Jónsdóttir
25. Ólína Helga Sigþórsdóttir ('76)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Björgvin Karl Gunnarsson (Þ)
Ljubisa Radovanovic (Þ)
Sonja Björk Jóhannsdóttir
Hjörvar Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Alexia Marin Czerwien ('66)
Calliste Brookshire ('78)

Rauð spjöld: