Höjlund færist nær Milan - Ramsey á leið til Newcastle - Man City í viðræðum um Donnarumma
Lengjudeild karla
Þróttur R.
39' 0
0
ÍR
Lengjudeild karla
Fjölnir
64' 1
1
Njarðvík
Lengjudeild karla
Selfoss
LL 3
0
HK
Lengjudeild karla
Leiknir R.
94' 0
0
Fylkir
Lengjudeild karla
Keflavík
LL 4
0
Grindavík
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
5
Þór
2. deild karla
KFA
LL 6
1
Höttur/Huginn
Besta-deild kvenna
Valur
LL 4
2
Stjarnan
Völsungur
2
5
Þór
0-1 Rafael Victor '3
Elfar Árni Aðalsteinsson '17 , misnotað víti 0-1
Ismael Salmi Yagoub '19 1-1
1-2 Ibrahima Balde '43
1-3 Einar Freyr Halldórsson '45
1-4 Kristófer Kristjánsson '46
Elfar Árni Aðalsteinsson '55 2-4
2-5 Sigfús Fannar Gunnarsson '61
13.08.2025  -  18:00
PCC völlurinn Húsavík
Lengjudeild karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
4. Elvar Baldvinsson ('58)
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
6. Inigo Albizuri Arruti
9. Elfar Árni Aðalsteinsson ('58)
10. Bjarki Baldvinsson ('71)
14. Xabier Cardenas Anorga
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('89)
22. Ismael Salmi Yagoub
23. Elmar Örn Guðmundsson ('58)
39. Gunnar Kjartan Torfason
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
88. Einar Ísfjörð Sigurpálsson (m)
7. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('58)
8. Ólafur Jóhann Steingrímsson ('71)
11. Rafnar Máni Gunnarsson ('58)
15. Tómas Bjarni Baldursson ('89)
17. Aron Bjarki Kristjánsson
21. Sergio Parla Garcia ('58)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Ármann Örn Gunnlaugsson
Davíð Leó Lund
Róbert Ragnar Skarphéðinsson
Bergsveinn Ás Hafliðason

Gul spjöld:
Elfar Árni Aðalsteinsson ('13)
Gunnar Kjartan Torfason ('41)
Elvar Baldvinsson ('56)
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('87)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þriðji sigur Þórsara í röð staðreynd
94. mín Gult spjald: Ingimar Arnar Kristjánsson (Þór )
93. mín
Víti??? Ingimar fellur við eftir tæklingu, virtist vera víti úr stúkunni en ekkert dæmt. Frábær sprettur og flott stungusending frá Dagbjarti. Sýndist Ismael eiga tæklinguna.
90. mín
Inn:Sverrir Páll Ingason (Þór ) Út:Christian Jakobsen (Þór )
89. mín
Inn:Tómas Bjarni Baldursson (Völsungur) Út:Jakob Héðinn Róbertsson (Völsungur)
89. mín
Arnar Pálmi með enn einn gullboltann, Jakob nær ekki til hans en heimamenn fá horn.
87. mín
Þórsarar í fínu færi og fá svo horn, endalaust af færum í þessum leik.
87. mín Gult spjald: Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Völsungur)
Gult á bekkinn, sá ekki hvort þetta var á Alla eða annan.
85. mín
Dagbjartur Búi í hörkufæri en skotið í varnarmann. Balde á svo skot sem fer beint á Ívar.
84. mín
Aron Birkir heldur um lærið eftir að hafa handsamað boltann og þarf aðhlynningu.
83. mín
Völsungar að reyna að minnka muninn, held það sé eitt mark ennþá í þessu.

Heimamenn fá tvö horn í röð.
81. mín
Rafnar með skot sem fer í Hermann og mér sýnist það svo vera Jakob sem mokar frákastinu yfir.
80. mín
Rafnar með skot sem fer af varnarmanni og afturfyrir, horn.
75. mín
Dauðafæri Balde með frábæra sendingu inn fyrir en afgreiðslan hjá Ingimar afleit og skotið framhjá.
74. mín
Atli Þór sleppur strax í gegn en Albi gerir mjög vel og hleypur hann uppi, kemur í veg fyrir dauðafæri.
73. mín
Inn:Atli Þór Sindrason (Þór ) Út:Einar Freyr Halldórsson (Þór )
73. mín
Inn:Hermann Helgi Rúnarsson (Þór ) Út:Rafael Victor (Þór )
72. mín
Þetta var hættuspark! Jakob Héðinn ætlar að skalla boltann en Greko hreinsar í burtu, þarna fannst mér vera hægt að dæma hættuspark inn á vítateig Þórs! Það voru svo fleiri köll nokkrum sekúndum seinna.
71. mín
Inn:Ólafur Jóhann Steingrímsson (Völsungur) Út:Bjarki Baldvinsson (Völsungur)
70. mín
Einar Freyr kemst í boltann eftir fyrirgjöf frá Rafael, leikur sér með boltann og á svo skot með vinstri sem Ívar ver.
68. mín
Rafnar í góðu færi Eftir nokkrar mínútur af doða á Völsungur góða sókn sem endar með skoti frá Rafnari sem Ýmir nær að komast fyrir.

Völsungur fær horn en gestirnir verjast því.
65. mín
Inn:Dagbjartur Búi Davíðsson (Þór ) Út:Kristófer Kristjánsson (Þór )
65. mín
Inn:Ingimar Arnar Kristjánsson (Þór ) Út:Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór )
63. mín
Slær á þögn í stúkunni Þetta mark Þórsara drap alla stemningu.
61. mín MARK!
Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór )
Stoðsending: Rafael Victor
Rignir inn mörkum Fyrirgjöf frá vinstri frá Rafael sem Sigfús stýrir í netið, 5-2.

Auðvelt mark og Þórsarar leiða aftur með þremur.
58. mín
Inn:Sergio Parla Garcia (Völsungur) Út:Elmar Örn Guðmundsson (Völsungur)
58. mín
Inn:Rafnar Máni Gunnarsson (Völsungur) Út:Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
58. mín
Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur) Út:Elvar Baldvinsson (Völsungur)
57. mín Gult spjald: Ibrahima Balde (Þór )
Annað hvort hann eða Fúsi sem fær gult.
56. mín Gult spjald: Elvar Baldvinsson (Völsungur)
Brýtur á Einari, sýndi takkanna.
55. mín MARK!
Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
Völsungur minnkar muninn! Fyrirgjöf frá vinstri sem er stýrt í stöngina, Elfar Árni er fyrstur á frákastið og þrumar boltanum í netið!

Mjög líflegur leikur!
53. mín
Arnar Pálmi með flottan bolta sem Elmar Örn Guðmundsson skallar en Aron Birkir ver.
52. mín Gult spjald: Juan Guardia Hermida (Þór )
51. mín
Gult spjald á Völsung, sá ekki hvern.
49. mín
Sigfús Fannar í dauðafæri eftir flottan sprett og sendingu þar á undan frá Einari, skotið yfir.
46. mín MARK!
Kristófer Kristjánsson (Þór )
Stoðsending: Sigfús Fannar Gunnarsson
4-1! Þórsarar nýta fyrstu sókn seinni hálfleiksins, Sigfús og Kristófer spila sín á milli og Kristófer skorar með vinstri fótar skoti framhjá Ívari vinstra megin úr teignum.
46. mín
Elfar Árni sparkar seinni hálfleik af stað Engar sjáanlegar breytingar.
45. mín
Hálfleikur
Þórsarar heilt yfir betra liðið og verðskulda að leiða.
45. mín MARK!
Einar Freyr Halldórsson (Þór )
Stoðsending: Rafael Victor
Þetta mark hjá drengnum!!!

Frábær aukaspyrna sem syngur í netinu. Boltinn yfir vegginn og í netið. Tvö mörk í tveimur leikjum hjá þessu mikla efni!
45. mín
Elvar tekur Rafael niður rétt við vítateig Völsungs, gott færi fyrir Þórsara.
44. mín
Sigfús Fannar með tilraun vinstra megin úr teignum sem fer yfir, fínasta færi.
43. mín MARK!
Ibrahima Balde (Þór )
On the volley! Aukaspyrna frá Einari sem Arnar skallar upp í loftið, Ragnar Óli lætur boltann vera, boltinn fellur vel fyrir Balde sem smellhittir hann á lofti utarlega í teignum og boltinn syngur í netinu.

Þórsarar leiða á ný.
41. mín Gult spjald: Gunnar Kjartan Torfason (Völsungur)
39. mín
Frábært spil hjá Völsungi en Jakob Héðinn Róbertsson klaufi að vera rangstæður. Þetta var tæpt.
35. mín
Arnar Pálmi með flottan bolta inn á Elfar sem fær smá snertingu í bakið frá Affi og skallar yfir.
33. mín
Greko með stungusendingu inn á Rafael sem lætur boltann skoppa og á svo tilraun sem fer hátt yfir mark heimamanna.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Balde með skalla yfir eftir hornið.
30. mín
Rafael með skot sem Ívar gerir mjög vel að verja yfir.

Í aðdragandanum er togað í Sigfús inn á teignum, hann stendur það af sér og fær ekkert fyrir það.
30. mín Gult spjald: Einar Freyr Halldórsson (Þór )
Fyrir mótmæli. Þórsarar vildu fá víti og Einar fær spjaldið sýnist mér.
29. mín
Góð sókn hjá Völsungum sem eru hársbreidd frá því að komast í alvöru færi.
27. mín
Bjarki rennir sér og tekur niður Balde en Siggi dæmir ekkert. Nafni dómarans í boðvangi Þórsara fer niður á hnén, trúir þessu ekki.
26. mín
Juan Guardia í mjög góðri stöðu eftir sendingu frá Kristófer en móttakan er þung og boltinn í hendur Ívars sem kom út á móti.
25. mín
Ýmir finnur Greko inn á teignum en Daninn þarf að teygja sig í boltann sem endar hjá Ívari í markinu.
21. mín
Balde liggur kvalinn eftir alvöru návígi milli hans og Albi. Balde fær aðhlynningu og Albi tékkar á honum.
20. mín
Sigfús Fannar með skot vinstra megin úr vítateig Völsungs sem Ívar ver og boltinn er svo hreinsaður í burtu.
19. mín MARK!
Ismael Salmi Yagoub (Völsungur)
Völsungur jafnar! Boltinn fellur fyrir Ismael sem lætur vaða frá vítateigslínunni og hittir boltann vel, óverjandi sýndist mér fyrir Aron í markinu.
18. mín
Völsungar eru allavega vaknaðir eftir hæga byrjun. Fá núna aukaspyrnu á álitlegum stað.
17. mín Misnotað víti!
Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
Langt framhjá!
16. mín
Völsungur fær víti Bjarki Baldvins fer niður og mér fannst þetta vera réttur dómur.
15. mín
Sigfús með skot rétt fyrir utan teig Völsungs sem fer vel yfir, fínasti séns eftir sendingu frá Einari.
13. mín Gult spjald: Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
Fer í návígi við Ragnar sem liggur eftir. Misjafnar skoðanir hvort þetta hafi verið brot, en Ragnar þarf allavega aðhlynningu.
12. mín
Sigfús með lofandi fyrirgjöf en Ívar stígur út og kemur í veg fyrir dauðafæri hjá Rafael. Þórsarar mun betri hér í byrjun leiks.
6. mín
Einar með fyrirgjöf, boltinn fer af Elfari Árna og Þór fær horn.

Greko fær fínt færi eftir hornið en hittir boltann illa. Annað horn niðurstaðan.
6. mín
Sigfús Fannar vinnur aukaspyrnu alveg við vítateig Völsungs, vinstra megin.
3. mín MARK!
Rafael Victor (Þór )
Fyrsta markið er komið! Einar Freyr með skot hægra megin í teignum sem Ívar ver, boltinn fer út í teiginn og Ívar er ekki alveg viss hvernig hann á að tækla frákastið, Rafael fær tíma til að stilla miðið og rennir boltanum í netið með vinstri fæti.

Þórsarsar leiða!
1. mín
Leikur hafinn
Þór byrjar með boltann
Fyrir leik
Ein breyting hjá heimamönnum Xabier Cardenas Anorga kemur inn fyrir Sergio Parla Garcia sem byrjar á bekknum.
Fyrir leik
Ein breyting hjá gestunum Ibrahima Balde kemur inn fyrir Orra sem er í leikbanni.
Fyrir leik
Leikurinn er í beinni á Livey


Fyrir leik
Fyrri leikurinn átti að vera á Húsavík Fyrri leikur þessara liða átta að vera spilaður á Húsavík en vegna veðurs var leikurinn færður í Bogann og liðin víxluðu á heimaleikjum.
   03.06.2025 15:06
Húsavíkurvöllur óleikfær - Spilað í Boganum á morgun
Fyrir leik
Orri í banni Orri Sigurjónsson er sá eini hjá þessum liðum sem tekur út leikbann í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Það er Sigurður Hjörtur Þrastarson sem dæmir þennan nágrannaslag.

Honum til aðstoðar verða þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Kári Mímisson. Bragi Bergmann er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Þrastar og Patrik verða á PCC vellinum í kvöld.
Fyrir leik
Staðan í deildinni Þór situr í 3. sæti deildarinnar með 30 stig, fjórum stigum frá toppnum þegar sex umferðir eru eftir. Völsungur situr í 7. sæti með ellefu stigum minna og átta stigum frá fallsæti.

Fyrri leikur liðanna endaði með 1:3 sigri Völsungs í Boganum.

Völsungur hefur fengið fimm stig út úr síðustu þremur leikjum, gerði síðast 2-2 jafntefli gegn Þrótti.

Þór hefur fengið 13 stig út úr síðustu fimm leikjum. Liðið vann síðast 1-2 sigur á Fylki.
Fyrir leik
Maggi Mark spáir... Formaður kennarasambandsins, Magnús Þór Jónsson, er spámaður umferðarinnar. Hann spáir útisigri á Húsavík.

Völsungur 1 - 2 Þór (18:00 í kvöld)
Norðurlandsslagur tveggja liða sem spila með hjartanu. Það hefur glatt norðlendingsanga hjartans að sjá Völsungana í sumar, var svo sannarlega á því að þeim myndi reynast sumarið erfitt en menn í grænu hafa verið ótrúlega samstilltir og þjálfarinn veit nákvæmlega hvað hann vill gera. Þórsararnir hafa verið á siglingu, hjónabandið þeirra við Sigga Höskulds var alltaf að fara að virka, DNA-ið það sama, berjast og deyja fyrir klúbbinn er eitthvað sem er alvöru vörumerki þeirra hvítrauðu úr Þorpinu og eiginleikarnir sem Siggi kallar eftir, vinnusemi og ákefð eru alltaf að verða ljósari. Viðurkenni það hér með að draumur minn væri að Þór og ÍR færu saman upp úr þessari deild og til að svo megi verða þurfa Þórsarar að vinna þennan naglbít!

Fyrir leik
Velkomin á PCC völlinn á Húsavík Góðan daginn lesendur kærir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik Völsungs og Þórs í 17. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram á PCC vellinum á Húsavík.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
3. Juan Guardia Hermida
5. Yann Emmanuel Affi
6. Ibrahima Balde
8. Einar Freyr Halldórsson ('73)
9. Rafael Victor ('73)
15. Kristófer Kristjánsson ('65)
19. Ragnar Óli Ragnarsson
24. Ýmir Már Geirsson
25. Christian Jakobsen ('90)
37. Sigfús Fannar Gunnarsson ('65)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('73)
18. Sverrir Páll Ingason ('90)
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
23. Ingimar Arnar Kristjánsson ('65)
26. Dagbjartur Búi Davíðsson ('65)
27. Atli Þór Sindrason ('73)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Halldór Mar Einarsson
Gestur Örn Arason
Stefán Ingi Jóhannsson
Konráð Grétar Ómarsson

Gul spjöld:
Einar Freyr Halldórsson ('30)
Juan Guardia Hermida ('52)
Ibrahima Balde ('57)
Ingimar Arnar Kristjánsson ('94)

Rauð spjöld: