Sancho á leið til Ítalíu - Bayern í viðræðum við Chelsea - Arsenal og Man Utd á eftir leikmanni PSG
Lengjudeild karla
ÍR
16:00 0
0
Þór
Lengjudeild karla
Völsungur
16:00 0
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Njarðvík
46' 1
2
Þróttur R.
Besta-deild karla
ÍBV
48' 2
0
Valur
Besta-deild karla
Stjarnan
48' 2
1
Vestri
Lengjudeild karla
HK
46' 1
1
Grindavík
Lengjudeild karla
Selfoss
48' 1
2
Fjölnir
Lengjudeild karla
Fylkir
45' 1
0
Keflavík
Fylkir
1
0
Keflavík
Arnór Breki Ásþórsson '32 1-0
17.08.2025  -  14:00
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Aðstæður: Grátt yfir öllu en annars ágætt veður
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Arnór Breki Ásþórsson
5. Orri Sveinn Segatta
7. Tumi Fannar Gunnarsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f) ('40)
11. Pablo Aguilera Simon
13. Þórður Ingi Ingimundarson
18. Nikulás Val Gunnarsson
66. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
88. Emil Ásmundsson
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
6. Þorkell Víkingsson
9. Eyþór Aron Wöhler
10. Benedikt Daríus Garðarsson
20. Theodór Ingi Óskarsson
23. Máni Austmann Hilmarsson
70. Guðmundur Tyrfingsson ('40)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Arnar Grétarsson (Þ)
Bjarni Þórður Halldórsson
Daði Ólafsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Ólafur Engilbert Árnason

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn leiða í hálfleik Fylkir fer inn í hálfleikinn með eins marks forystu eftir mark Arnórs Breka. Þeir hafa líka verið miklu betra liðið og ættu með réttu að vera búnir að skora fleiri mörk í fyrri hálfleik.
44. mín
Ragnar Bragi illa meiddur? Lýsendurnir hérna á vellinum eru að tala um að annað hvort sé Ragnar Bragi með slitið krossband eða rifinn liðþófa. Hræðilegar fréttir, bæði fyrir hann og Fylki.
43. mín
Ásgeir Eyþórs tekinn við fyrirliðabandinu Ásgeir Eyþórsson hefur fengið fyrirliðabandið þegar Ragnar Bragi fór af velli áðan.
40. mín
Inn:Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir) Út:Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Vonum að þetta sé ekkert alvarlegt hjá Ragnari Braga.
37. mín
Ragnar Bragi sárþjáður Ragnar Bragi liggur eftir, eftir sókn Keflavíkur, og virðist hafa lokið leik í dag. Veltist hérna um af sársauka og börurnar að koma inn á. Ömurlegt að sjá og vonandi batnar honum skjótt og örugglega.
35. mín
HVERNIG ER EKKI 2-0??? Ragnar Bragi allt í einu kominn einn á móti Sindra Kristni, tekur boltann á lofti en Sindri tekur á honum stóra sínum og ver frá fyrirliða Fylkis. Galið að staðan sé bara 1-0 fyrir Fylki.
32. mín MARK!
Arnór Breki Ásþórsson (Fylkir)
Þvílík þræðing og alvöru finish! Emil Ásmunds tekur tvo menn á á miðjunni áður en hann á þessa stórkostlegu stungusendingu í gegn á Arnór Breka sem tekur eina snertingu áður en hann þrumar boltanum í fjærhornið!

Fyllilega verðskulduð forysta sem Fylkir er komið í.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Frábær skalli Hornspyrna frá vinstri sem Orri Sveinn nær að skalla á markið en Sindri Kristinn vel á verði og blakar boltanum af línunni áður en varnarmenn Keflavíkur hreinsa frá.
27. mín
Leikurinn farinn í gang aftur
26. mín
Menn liggja Marin Mudrazija og Ásgeir Eyþórs liggja eftir samstuð.
24. mín
HVAÐ ÞARF FYLKIR MÖRG FÆRI?? Nikulás Val í flottu færi hægra megin í teignum en enn og aftur ná heimamenn ekki að skora.
19. mín
Fylkir miklu betra liðið Svakaleg pressa heimamanna skilar sér í því að Pablo kemur boltanum hægra megin í teiginn á Þórð sem neglir boltanum í klofið á varnarmanni áður en Sindri Kristinn gerir vel að verja og halda í boltann.
14. mín
Illa farið með gott færi Fylkismenn komast í hörku færi hérna sem Nikulás Val fer illa með. Hann fær sendinguna utan af kanti frá Halldóri Jóni og er einn en alltof lengi að athafna sig og Keflvíkingar komast í boltann.
11. mín
Skot á mark Boltinn dettur fyrir Emil Ámunds sem nær skoti á markið sem Sindri Kristinn ver í horn sem ekkert verður úr.
9. mín
Lélegt horn Hornið niðri með jörðinni og Keflavík hreinsa og geysast fram en ná ekki að skapa sér neitt. Þessi leikur fer skemmtilega af stað.
8. mín
Horn fyrir heimamenn Halldór Jón með skot í varnarmann og boltinn skrúfast í horn.
6. mín
Aukaspyrna fyrir Fylki Marin Brigic þrumar niður leikmann Fylkis. Ragnar Bragi tekur spyrnuna og hún endar hjá Coca-Cola hérna hinu megin við Hraunbæinn.
4. mín
Flottur skalli Ásgeir Páll kemst upp vinstri kantinn og á flotta fyrirgjöf á kollinn á Muhamed sem skallar boltann framhjá marki Fylkis.
1. mín
Leikur hafinn
Í gang með þetta Heimamenn sparka þessu í gang og sækja í átt að Hraunbæ. Keflavík sækir í átt að Árbæjarlaug.
Fyrir leik
Þetta fer að bresta á! Þá ganga liðin inn á völlinn ásamt Gunnar Frey dómara og hans teymi. Smá andvari og klassískt íslenskt síðsumars veður.
Fyrir leik
Keflavík og miðjumoðið Keflavík situr sem stendur í 6. sæti Lengjudeildarinnar, með 2 stigum minna en HK sem eru í 5. og síðasta umspilssætinu.

Augu Keflvíkinga hljóta að vera á umspilinu þar sem þeir eiga möguleika á að komast upp í Bestu-deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Erfitt gengi Fylkis Nóg hefur verið rætt og ritað um gengi Fylkis í sumar, en það átti einungis að vera formsatriði að liðið færi upp í Bestu-deildina.

Núna, þegar 5 umferðir eru eftir af Lengjudeildinni, er staðan sú að liðið situr í neðsta sæti deildarinnar, 2 stigum frá öruggu sæti, og er langt um líklegra til að falla niður í 2. deildina heldur en að berjast um umspilssæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gummi Magg spáir í spilin Guðmundur Magnússon, nýjasti leikmaður Íslandsmeistara Breiðabliks, spáir í 18. umferð Lengjudeildarinnar og hefur þetta um leikinn að segja:

Fylkir 1 - 3 Keflavík

Erfitt tímabil fyrir Fylki, virðist ekkert ganga og sjálfstraustið lítið. Keflavík koma með kassann úti eftir Suðurnesjaslaginn. Fylkir kemst yfir en Keflavik snýr dæminu við og vinnur 1-3.


Fyrir leik
Leikdagur! Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Tekk-vellinum í Árbæ þar sem Fylkir fær Keflavík í heimsókn í 18. umferð Lengjudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
21. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Nacho Heras
6. Sindri Snær Magnússon (f)
7. Kári Sigfússon
11. Muhamed Alghoul
14. Marin Mudrazija
18. Ernir Bjarnason
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
27. Viktor Elmar Gautason
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
12. Rúnar Gissurarson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
5. Stefán Jón Friðriksson
8. Ari Steinn Guðmundsson
10. Stefan Ljubicic
23. Eiður Orri Ragnarsson
25. Frans Elvarsson
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Hólmar Örn Rúnarsson
Luka Jagacic
Guðmundur Árni Þórðarson
Óskar Ingi Víglundsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: