Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Keflavík
Keflavík
Lengjudeild kvenna
HS Orku völlurinn
Fínasta veður og svo gott sem logn
0 - 1
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/​Njarðvík
0 - 135' Brookelynn Paige Entz
Dómari: Reynir Ingi Finnsson

SKÝRSLAN: Hreinn úrslitaleikur framundan á fimmtudaginn

Hvað réði úrslitum?

Grindavík/Njarðvík náði inn marki er auðveldasta svarið við því hvað réði úrslitum. Það voru ekki mikil gæði í þessum leik og leikplan Keflavíkur fannst manni snúast mikið frekar um að skemma fyrir Grindavík/Njarðvík frekar en að einbeita sér að því að reyna vinna bara leikinn ef það meikar einhvern sens? Frábærlega gert á móti hjá Grindavík/Njarðvík að mæta í leikinn með þetta mikið undir og klára verkefnið

Bestu leikmenn

1. Anna Arnarsdóttir (Keflavík)

Varði oft frábærlega í marki Keflavíkur og var stór ástæða þess að leikurinn fór bara eitt núll. Virkilega öflugur leikur hjá markverðinum.

2. Brookelynn Paige Entz (Grindavík/Njarðvík)

Var allt í öllu sóknarlega hjá gestunum og skoraði svo markið sem skilur á milli. Gríðarlegur happafengur fyrir Grindavík/Njarðvík að eiga inni.

Atvikið

Lokaflautið. Maður sá það strax hvað þetta skipti liðið miklu máli að landa þessum sigri og gleðin var ósvikinn eftir lokaflautið að eiga séns á því að fara upp í lokaumferðinni.

Hvað þýða úrslitin?

Við fáum hreinan úrslitaleik á fimmtudaginn kemur þegar HK heimsækir Grindavík/Njarðvík á JBÓ völlinn. Tvö stig sem skilja þessi lið að fyrir lokaumferðina og heimavöllurinn þarf að telja fyrir Grindavík/Njarðvík ef þær ætla sér upp því þær þurfa sigur. Keflavík eru ekki í neinni baráttu nema bara upp á stoltið fyrir lokaumferðina.

Vondur dagur

Sóknarleikur Keflavíkur mætti ekki til leiks.

Dómarinn - 6

Allt í lagi ekki gott er sennilega stutta svarið við þessu. Komst ágætlega frá sínu teymið. Hefðu mátt dæma á nokkur ólögleg innköst og svo var línan á það hvenær væri flautað og hvenær ekki stundum ekki nógu skýr en dómgæslan hafði engin úrslitaáhrif hér í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.