Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Twente
Twente
Forkeppni Meistaradeildarinnar
2. umferð úrslitaleikur
2 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Sophie Proost 64'1 - 0 Jaimy Ravensbergen 78'2 - 0
Dómari: Hristiyana Guteva (Búlgaría)
Leik lokið!
Þessu er lokið í Hollandi. Erfitt að tala um annað en sanngjarnan sigur Twente. Evrópa er þó ekki úr sögunni hjá Breiðablik sem fer í hina nýju keppni Europa Cup
90. mín
Uppbótartími er að lágmarki fjórar mínútur.
89. mín
Þetta er hreinlega að fjara út í rólegheitum. Twente skiljanlega sátt með sitt og fátt i leik Breiðabliks sem bendir til þess að þær séu að fara að koma til baka úr þessu.
Breiðablik
87. mín
InnLíf Joostdóttir van Bemmel
ÚtAndrea Rut Bjarnadóttir
85. mín
Nikée Van Dijk með skot úr teignum eftir góða sókn Twente. Laust og ekki til vandræða fyrir Katherine
84. mín
Samantha Smith með laglegan snúning á vallarhelmingi Twente. Með pláss til að sækja í keyrir hún inn á teiginn og á skot en nær ekki að setja boltann á markið.
81. mín
Stórhættulegur bolti frá hægri frá Öglu Maríu siglir framhjá hverjum Blikanum á fætur öðrum í teignum áður en hann fer afturfyrir. Flaggið fer síðan á loft í þokkabót.
Breiðablik
80. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
Twente
78. mín
Eins óheppilegt og það verður

Jaimy Ravensbergen

Langur bolti ætlaður Ravensbergen fer í bakið á Elínu Helenu og fellur þaðan beint fyrir fætur Ravensbergen sem þakkar pent fyrir sig og setur boltann þægilega efsti í hægra markhornið úr miðjum teignum.
75. mín
Leonie Vliek með skot úr teignum eftir snögga sókn Twente en hittir ekki markið.
Breiðablik
74. mín
Gult spjald

Andrea Rut Bjarnadóttir

Dæmd brotleg og lætur nokkur vel valin orð falla við það tilefni. Hristiyana ekki til í það.
Twente
74. mín
Inn Nikée Van Dijk
Út Sophie Proost
72. mín
Kristín Dís stígur Proost hressilega út og Proost steinliggur og þarf aðhlynningu. Ekkert brot dæmt enda ekkert á þetta en kröftugt var það.
71. mín
Tuttugu mínútur til stefnu. Styttist óðum í að Blikar verði að kasta allri varfærni fyrir borð og hreinlega reyna að keyra á þetta.
Breiðablik
67. mín
InnKristín Dís Árnadóttir
ÚtBarbára Sól Gísladóttir
Twente
67. mín
Inn Sophie Te Brake
ÚtEva Oude Elberink
Twente
64. mín
Twente nær forystu.

Sophie Proost

Verður að hrósa fyrir það sem vel er gert. Ravensbergen nær að böðla boltanum á einhvern undaverðan hátt í gegnum tvo varnarmenn og innfyrir á Proost. Hún leikur inn á teiginn frá hægri áður en hún leggur boltann snyrtilega í nærhornið.
62. mín
Blikar í færi
Berglind Björg í fínu færi í teignum eftir fyrirgjöf Andreu en skóflar boltanum hátt yfir markið.
61. mín
Sophie Proost með laglegt skot af um 18 metrum sem svífur hárfínt framhjá.
60. mín
Samband komið á á ný.
54. mín
Tæknin gefur og tæknin tekur
Sjónvarpsútsending frá leiknum er dottin út og höfum við því ekki augu á því sem er að gerast á vellinum. Á meðan svo er færi ég helstu atvik leiksins inn eftir því sem þau gerast samkvæmt upplýsingum frá UEFA.
51. mín
Slakt víti
En frábær varsla Katherine les Jaimy eins og opna bók og ver vel. Blikar fyrstir á frákastið en Twente fær horn.
Breiðablik
51. mín
Gult spjald

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir

Brotleg gegn Eva Oude Elberink í teignum.
50. mín
Twente er að fá vítaspyrnu!
50. mín
jaimy Ravensbergen tekur boltann snyrtilega niður í algjöru dauðafæri í teignum en setur boltann framhjá markinu. Flaggið fer svo á loft svo það hefði ekki talið.
49. mín
Sophie Proost sleppur innfyrir vörn Blika og er í hörkufæri. Setur boltann sem betur fer yfir markið.
47. mín
Andrea Rut í dauðafæri! Fær boltann innfyrir frá Áslaugu Mundu en skot hennar slakt og fer boltinn langt framhjá.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Blikar sparka okkur af stað á ný.
Twente
46. mín
Inn Amanda Andradóttir
Út Lynn Carla Groenewegen
Amanda mætir til leiks í síðari hálfleik.
45. mín
Flautað til hálfleiks í Hollandi. Blikastúlkur geta verið sáttar að mörgu leyti með þennan fyrri hálfleik. Varist fimlega til þessa og átt sín augnablik framar á vellinum.
45. mín
+2
Elín Helena skallar fyrirgjöf frá vinstri í horn.
45. mín
+1
Twente sækir en er ekki að takast að finna glufur á virkilega þéttri varnarlínu Blika. Þessi fyrri hálfleikur verið prýðilega leikinn að hálfu Breiðabliks í stöðu sem við erum alls ekki vön að sjá liðið í.
45. mín
Líður að hálfleik hér. Uppbótartími er að minnsta kosti 2 mínútur.
38. mín
Twente fær horn. Eru að skrúfa tempóið ögn upp. Mikið kraðak í teig Blika eftir hornið en þær koma boltanum frá á endanum.
Breiðablik
37. mín
Gult spjald

Elín Helena Karlsdóttir

Full aðgangshörð á miðjum vellinum að mati dómara leiksins. Nik er ekki sammála.
36. mín
Twente fær aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu. Spyrnan skölluð frá en boltinn beint inn á teiginn aftur þar sem Lieske Carleer skallar yfir markið úr afbragðsfæri.
33. mín
Stefið lítið breyst. Twente er með boltann en lítið að ógna marki Blika.
28. mín
Einhver léttur pirringur í þeim Hollensku sem eru að láta hina búlgörsku á flautunni fara eitthvað í taugarnar á sér. Við fögnum því.
23. mín
Twente fær hornspyrnu. Spyrnt yfir á fjærstöng en skallinn framhjá markinu.
18. mín
Breiðablik ógnar
Vinna boltann hátt á vellinum og skila honum út til vinstri á Samönthu. Hún leikur inn á teiginn og reynir að snúa boltann í hornið fjær en setur hann framhjá markinu. Það eru möguleikar í þessu fyrir Breiðablik.
16. mín
Klaufagangur í öftustu línu
Blikar tapa boltanum alveg við eigin teig beint í fæturnar á Jaimy Ravensbergen. Hún reynir að snúa að markinu og nær skoti en Katherine ver laust skot hennar næsta auðveldlega.
14. mín
Skyndisókn Blika
Áslaug Munda keyrir upp völlinn og setur hann fyrir hlaup Samönthu. Hún reynir að finna Berglindi í teignum en varnarmenn skila boltanum í horn.
11. mín
Þessar upphafsmínútur verið í eigu Twente. Blikaliðið ætlar að sitja og verjast og freista þess að sækja hratt. Heiðdís liggur eftir á vellinum og þarf aðhlynningu.
8. mín
Álaug Munda tapar boltanum á hættulegum stað. Twenta færir boltann hratt frá vinstri yfir til hægtra og Sophie Proost sem leikur inn á teiginn og lætur vaða. Katherine með allt á hreinu og slær boltann í horn.
4. mín
Twente vinnur fyrstu hornspyrnu leiksins. Boltinn frá hægri yfir á fjærstöng þar sem heimakonur ery fyrstar á boltann. Sé ekki hver á skallan úr þvögunni en Devine ver boltann út í teiginn.
2. mín
Karitas Tómasdóttir fær óblíðar viðtökur á miðjunni og fær talsvert högg. Er þó fljót á fætur og er í lagi.
1. mín
Þetta er farið af stað. Það eru heimakonur sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Uppstilling Breiðabliks
Mynd: Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
Leikurinn er í beinni á Livey
Það er vert að benda á að leikurinn er í beinni útsendingu á Livey. Um að gera að skella sér í áskrift þar og njóta þess sem þeir hafa upp á að bjóða.
Fyrir leik
Sigur eða tap. Hvað gerist svo?
Sigur: Einfalt og þægilegt. Breiðablik áfram í þriðju umferð sem er umspil um sæti í aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu. Tap: Breiðablik fer í Champions Path í Europa Cup (Evrópubikarinn) Liðið kemur þar inn í 2.umferð forkeppni og getur þar mætt sigurliðum úr einvígjum liða sem enduðu í 3.sæti í þessari túrneringu. Þar á meðal er t.d Inter sem sló Val út. Einnig koma inn í 2.umferð lið sem fallla út í 3 umferð þessarar forkeppni. Sem þýðir. Ef Blikar t.d tapa í dag og Twente fer áfram. Þá gæti Breiðablik mætt Twente aftur fari svo að hollenska liðið falli út í 3.umferð Meistaradeildarinnar. Skilduð þið þetta? Nei gott, ekki ég heldur.
Fyrir leik
Breiðablik
Blikar koma til leiks á miklu flugi. Nýkrýndir bikarmeistarar, á toppi Bestu deildarinnar og nú aðeins einu skrefi frá Meistaradeild Evrópu. Blikar unnu góðan sigur á Írsku meisturunum í Athlone Town í fyrstu umferð á dögunum. Samantha Smith (2) og Berglind Björg Þorvaldsdóttir gerðu þar mörk Breiðabliks í 3-1 sigri. Verkefni dagsins er þó ærið og ljóst að Breiðablik þarf að eiga sinn allra besta leik til þess að tryggja sig inn í næstu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Twente
Mótherjar dagsins eru Hollensku meistararnir í Twente. Liðið er eitt sigursælasta félag kvennaboltans í Hollandi og hefur sem dæmi unnið deildina þar í landi 5 sinnum á síðustu 10 árum. LÞetta er annað árið í röð þar sem liðið mætir íslenskum mótherja í keppninni en í fyrra vann Twente sannfærandi 5-0 sigur á liði Vals í forkeppninni. Íslandstenging Twente endar ekki þar en með liðinu leikur Amanda Andradóttir sem gekk til liðs við hollenska liðið í fyrra frá Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Evrópudagur
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Breiðabliks og Twente í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.