SKÝRSLAN: Völsungar svo gott sem öruggir eftir góðan sigur
Hvað réði úrslitum?
Sparkvissir heimamenn. Arnar Pálmi kom Völsungum yfir með bylmingsskoti og Jakob Héðinn skoraði seinna markið eftir frábæran sprett upp hálfan völlinn áður en hann smurðann upp í hornið fjær.
Bestu leikmenn
1. Xabier Cardenas Anorga
Xabier var færður niður í miðvörð eftir að Albizuri fór meiddur útaf og var gjörsamlega frábær! Vann öll sín einvígi og steig varla feilspor.
2. Ívar Arnbro Þórhallsson
Ívar var virkilega góður í dag og varði nokkrum sinnum mjög vel.
Atvikið
Mark Jakobs Héðins. Frábær sprettur og afgreiðsla sem kom Völsungi í þægilega forystu.
Hvað þýða úrslitin?
Völsungar eru svo gott sem öryggir með sæti sitt í Lengjudeildinni að ári, þvert á allar spár.
Grindavík eru enn í harðri fallbaráttu.
Vondur dagur
Sóknarlína Grindavíkur. Þeir fengu færi til að skora sem þeir nýttu ekki og þegar þeir lágu á heimamönnum sköpuðu þeir sér afar lítið.
Dómarinn - 7
Vel dæmt heilt yfir en auðvitað er alltaf hægt að finna eitthvað til að tuða yfir.


