SKÝRSLAN: Alvöru dramatík og 3 mikilvæg stig á selfoss!
Hvað réði úrslitum?
Selfyssingar mættu mjög grimmir útí seinni hálfleik unnu mikið að einvígum og Þórsarar voru steinsofandi mestmegnis af seinni hálfleik og voru í basli með miðju og sóknarmenn Selfyssinga.
Bestu leikmenn
1. Aron Lucas Vokes
Aron Lucas skoraði sigurmark Selfoss og var með eina stoðsendingu og var heilt yfir frábær í þessum leik og gerði varnarmönnum Þórs mjög erfitt fyrir.
2. Alexander Berntsson
Alexander átti mjög góðan leik í dag og vann mikið af skallaeinvígum var mjög traustur í vörn Selfyssinga og skilaði sínu mjög vel í dag.
Atvikið
Það var að sjáfsögðu sigurmarkið hjá Aroni Lucas tekur geggjaðan sprett í raun frá miðju og fer framhjá 3 Þórsurum sem réðu ekkert við hann og allt trylltist á vellinum.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss eru komnir uppúr fallsæti og komnir í 9 sæti deildarinnar með 19 stig og fara næst í Breiðholtið og heimsækja Leiknismenn í 6 stiga leik.
Þórsarar eru hinsvegar í 3 sæti 2 stigum á eftir Þrótti sem eru á toppnum, Mikið svekkelsi fyrir Þór sem hefðu með sigri tillt sér á toppinn.
Vondur dagur
Mér fannst enginn eiga þannig séð mjög slæman dag en þarf því miður að gefa Aroni Birki sem er heilt yfir í sumar búinn að vera mjög góður en hann á að verja fyrsta mark Selfyssinga sem komu þeim á bragðið
Dómarinn - 5
Fannst Twana allt í lagi en var rosalega spjaldaglaður gaf 8 gul spjöld en mér fannst að hann mætti leyfa leiknum að fljóta meira.


