Barcelona vill fá Kane - Wharton efstur á lista Chelsea - Endrick lánaður til Lyon
Úkraína
0
0
Ísland
16.11.2025  -  17:00
Varsjá
Undankeppni HM
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Sérfræðingur Sýnar með áhyggjur af varnarleiknum
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Lárus Orri Sigurðsson, sérfræðingur á Sýn Sport og þjálfari ÍA, hefur áhyggjur af varnarleik liðsins fyrir leikinn gegn Úkraínu.

„Þetta er hörkugott lið. Vandamálið er varnarlega. Við megum ekki gera svona mistök eins og í dag. Við erum að sjá mistök þar sem við erum að missa leikmenn inn fyrir okkur. Gulli er sofandi, á móti sterkari liðum er þér refsað. Það á að nota svona leiki til að æfa sig í þessu. Þú verður alltaf að vera 100%. Það er áhyggjuefni að sjá menn slökkva á sér í svona leikjum," sagði Lárus í umfjöllun Sýnar Sport eftir sigurinn gegn Aserbaísjan.
Fyrir leik
Við komum í hefndarhug
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tapaði 3-5 fyrir Úkraínu í furðulegum leik á Laugardalsvelli í síðasta glugga, þar sem nánast allt endaði inni.

Þá mættust þjóðirnar á síðasta ári í úrslitaleik umspils fyrir EM í Wroclaw í Póllandi. Úkraína tryggði sér þar sigurinn 2-1 með sigurmarki á 84. mínútu. Svekkjandi stund. Albert Guðmundsson skoraði mark Íslands í leiknum.

„Þegar við töpuðum í síðasta úrslitaleik á móti þeim í fyrra var svekkjandi. Mér fannst við eiga meira skilið úr leiknum í síðasta glugga. Við komum í hefndarhug," segir Albert.
Fyrir leik
„Þetta er það sem maður er í fótbolta fyrir“
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Menn verða að gera sig klára og svo er bara 'all in'. Úrslitaleikur," sagði Hákon Arnar Haraldsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, í samtali við Fótbolta.net eftir 2-0 útisigurinn gegn Aserbaísjan.

„Þetta er það sem maður er í fótbolta fyrir: Stóru leikirnir þar sem allt skiptir máli. Við höfum spilað vel og komið okkur í þennan úrslitaleik upp á annað sætið," segir Hákon.
Fyrir leik
Velkomin í úrslitaleik í Póllandi!
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þetta er ekki flókið: Annað þessara liða kemst í umspil um sæti á EM. Úkraína þarf sigur en Íslandi dugir jafntefli. Það er úrslitaleikur framundan á pólska herstöðvarleikvangnum, heimavelli Legia Varsjá. Háspenna!
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: