Fotbolti.net
Besta deildin
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 5
FH
FH
Freyja Stefánsdóttir 11'1 - 01 - 117' Nia Raisa Christopher1 - 218' Ingibjörg Magnúsdóttir1 - 357' Deja Jaylyn Sandoval1 - 467' Thelma Lóa HermannsdóttirJóhanna Elín Halldórsdóttir 71'2 - 42 - 579' Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Leik lokið!
FH á topp Bestu deildarinnar
FH sigra mjög svo verðskuldað hér í dag og taka sér sæti á toppi deildarinnar, viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
+4
Góð sókn hjá Víkingum endar sem skoti frá Jasmín sem fer fram hjá. Þær vilja horn en Aðalbjörn gefur markspyrnu.
90. mín
+3
FH fá horn sem Andrea tekur og finnur Jónínu inná teignum en skallinn er yfir
90. mín
+1
Berglind Freyja komin ein gegn McClellan en skotið í hliðarnetið
90. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma
87. mín
Frábært spil hjá FH endar inná teig Víkinga þar sem þær ná skoti á markið en McClellan ver vel.
85. mín
Hornið skilar litlu en Víkingar halda í boltann og fínna Jóhönnu á fjær en hún nær ekki til boltans
84. mín
Jasmín gerir vel í baráttu við varnarmenn FH og næs skoti á markið en þær henda sér fyrir það og Víkingar eiga horn
FH
79. mín
ANDREA RÁN!!

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir

Andrea ber boltann upp nokkra metra áður en hún lætur bara vaða af 30 metrunum og smyr hann í skeitin. Hún trúir þessu minnst sjálf.
77. mín
Áfram halda Víkingar að sækja og Jóhanna Elín svo nálægt því að skora aftur en nær ekki alveg til boltans
Víkingur R.
74. mín
InnÞórhildur Þórhallsdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
Víkingur R.
74. mín
InnJasmín Erla Ingadóttir
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
73. mín
Boltinn frá Bergdísi er hár og fer yfir allan pakkann en Víkingar halda þó boltanum.
72. mín
Víkingar að sækja í sig veðrið og sækja horn
Víkingur R.
71. mín
Er von?

Jóhanna Elín Halldórsdóttir

Loksins ná Víkingar nokkrum sendingum á milli sín sem endar hjá Bergdísí úti á vinstri kantinum. Hún setur fullkominn bolta inn í sem vörn og markmaður vita ekki alveg hver á að fara útí en hann endar í stönginni. Jóhanna Elín er rétt kona á réttum stað og kemur boltanum yfir línuna.
FH
68. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtÍda Marín Hermannsdóttir
FH
68. mín
InnVigdís Edda Friðriksdóttir
ÚtAnna Heiða Óskarsdóttir
FH
67. mín
Fjórða mark gestanna!

Thelma Lóa Hermannsdóttir (stoðsending: Nia Raisa Christopher)

FH spila sig vel út úr vörninni áður en Christopher fær hann í lappir og vinnur baráttuna við Áslaugu Dóru. Christopher finnur Thelmu Lóu sem tekur Þórdísi á, hefur betur, og klárar niðri í hornið hægra megin.
66. mín
Bergdís gerir vel í pressunni og stelur sendingu, hún keyrir á vörnina og dregur varnarmann í sig áður en hún losar boltann á Freyju en snertingin hennar er slök og sóknin rennur út í sandinn.
64. mín
Jóhanna Elín með fínan sprett upp hægri kantinn en síðasta snertingin er aðeins of þung og hún rétt missir hann aftur fyrir.
Víkingur R.
62. mín
InnArna Ísold Stefánsdóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
Víkingur R.
62. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
61. mín
Boltinn frá Andreu er hár og enginn nær almennilega til hans.
FH
60. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
FH
60. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
FH
60. mín
InnMackenzie Elyze Smith
ÚtHelena Maree Errington
59. mín
Enn eitt hornið sem FH fær.
FH
57. mín
Verðskuldað!

Deja Jaylyn Sandoval (stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir)

Andrea Rán, sem er búin að taka góð horn í þessum leik, kemur með boltann inn á markteiginn þar sem Sandoval rís manna hæst og stangar boltann netið!
55. mín
FH halda uppteknum hætti frá fyrri hálfleik og sækja stöðugt, og uppskera hornspyrnu
51. mín
Dagný þarf aðhlynningu eftir samstuðið við Aldísi í kjölfar hornsins.
50. mín
FH fá horn sem Andrea tekur sem fyrr. Þórdís Hrönn hreinsar beint til baka á Andreu sem kemur með boltann á fjær þar sem FH ná að koma honum aftur fyrir, boltinn endar hjá Birnu Kristínu sem á skot hátt yfir.
49. mín
Dagný að sleppa ein í gegn en Aldís er vel á verði og kemur út úr markinu rétt svo í tæka tíð en Dagný liggur kylliflöt eftir.
46. mín
Nia Christopher byrjar seinni hálfleikinn
45. mín
Hálfleikur
Sjúkrabíll mættur til þess að sækja Ísfold Ylfu sem liggur enn sárþjáð á börunum. Heldur um hnéð og fyrstu fréttir eru að liðband hafi líklega skaðast, vonandi að það sé ekki alvarlegt.
45. mín
Hálfleikur
Víkingar eiga fína sókn og ná tveimur skotum en í varnarmenn og á því augnabliki er flautað til hálfleiks.
45. mín
+1
Stöngin!

Thelma Lóa gerir vel úti vinstra megin og setur Emmu á skauta, hún kemur síðan með boltann inn í þar sem Ingibjörg á laust skot sem endar á Christopher sem nær örlítilli snertingu og boltinn lekur í stöngina og þaðan þær McClellan til boltans.
45. mín
Fjórar mínútur í uppbót
42. mín
Freyja með fína hugmynd og ætlar að finna Dagný í hlaupið en boltinn of fastur og sókn Víkinga rennur út í sandinn
Víkingur R.
38. mín
InnAnika Jóna Jónsdóttir
ÚtÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
38. mín
Ísfold Marý liggur eftir eitthvað skrýtnasta fall sem ég hef séð og er borin út af á börum. Óskum henni góðs bata!
36. mín
Ída Marín með skot fyrir utan teiginn sem fer langt yfir.
34. mín
FH í hörkusókn og Thelma Lóa kemur með fínan bolta inn á teiginn en skotið fer svo hátt yfir markið.
31. mín
Dagný fær boltann í hlaupið frá Emmu og ætlar að koma honum fyrir markið en Birna Kristín fylgir henni eins og skugginn og kemur í veg fyrir það.
27. mín
Ída Marín með geggjaða utanfótar sendingu inn fyrir á Christopher en flaggið á loft.
25. mín
Emma Steinsen með góðan bolta á fjær þar sem Bergdís kemur á ferðinni en hvorki hún né Aldís ná til hans og boltinn endar á því að fara aftur fyrir.
25. mín
Boltinn frá Andreu langur á fjær, eiginlega aðeins of langur og FH skalla hann aftur fyrir.
24. mín
Thelma Lóa keyrir á vörn Víkinga og uppsker horn.
FH
18. mín
FH setja strax annað.

Ingibjörg Magnúsdóttir

Ingibjörg fær boltann hægra megin á vellinum og keyrir bara í gegn um hjarta Víkinga og leggur hann niðri vinstra megin frá D-boganum, mjög slappur varnarleikur hjá heimakonum sem leyfðu Ingibjörgu að vaða í gegn.
FH
17. mín
Þær jafna!

Nia Raisa Christopher (stoðsending: Helena Maree Errington)

Frábært mark hjá FH. Ída Marín finnur Errington inn fyrir í hlaupið í átt að endalínunni. Errington kemur boltanum fyrir á Christopher og eftirleikurinn er auðveldur fyrir hana en hún klárar í galopið markið af meters færi
15. mín
Andrea Rán með góðan bolta á ennið á Ídu Marín sem á fínan skalla sem fer af varnarmanni og á markið. McClellan gerir mjög vel í markinu að bregðast við og ver.
15. mín
Aftur er Andrea Rán mætt á vettvang, setur spyrnuna á fjær en Ísfold skallar aftur fyrir hinum megin, annað horn.
14. mín
Andrea Rán tekur gott horn inn á markteiginn þar sem Víkingar skalla hann aftur fyrir í horn hinum megin.
14. mín
FH halda uppteknum hætti og sækja hornspyrnu.
Víkingur R.
11. mín
Þær eru ekki búnar að anda að marki FH fram að þessu

Freyja Stefánsdóttir (stoðsending: Emma Steinsen Jónsdóttir)

Emma Steinsen er komin hátt upp hægri kantinn þar sem hún fær boltann. Hún hefur nægan tíma til að leggja hann fyrir sig. Hún kemur með lágan bolta inn á markteiginn þar sem Freyja Stefánsdóttir gerir vel, kemur sér fram fyrir varnarmanninn og setur hann undir Aldísi í markinu.
10. mín
Sóknin heldur áfram og Nia fær hann á lofti inn á teig en flaggið á loft.
9. mín
Nauðvörn Víkinga heldur áfram og FH ná loksins skoti á markið. Ída Marín, sem hefur verið öflug í upphafi leiks á fast skot fyrir utan teig sem McClellann fer ágætlega.
8. mín
Uppstilling liðanna
Víkingur
McClellan
Emma, Ísfold, Áslaug, Kristín, Þórdís
Birta, Begga Sól
Bergdís
Dagný, Freyja

FH
Aldís
Anna Heiða, Jónína, Deja
Andrea Rán, Ída Marín
Birna Kristín
Ingibjörg, Nia, Helena, Thelma
5. mín
FH öflugar fyrstu fimm án þess þó að ná skoti á markið, sækja stöðugt.
2. mín
Aftur eru FH í sókn en Víkingar ná að koma sér aftur fyrir boltann og gestirnir ná ekki skoti á markið.
1. mín
FH strax komnar í álitlega stöðu þegar Ída Marín finnur Nia inn fyrir en flaggið á loft.
1. mín
Leikur hafinn
Víkingar byrja með boltann
Bergdís. sparkar okkur í gang og Víkingar sækja í átt að Kópavogi
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn
Allt að verða klárt!
Fyrir leik
Selma Dögg í hóp
Gaman að sjá að Selma Dögg Björgvinsdóttir snýr aftur í hóp Víkinga eftir að hafa átt sitt þriðja barn. Bjóðum hana hjartanlega velkomna aftur!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjunarliðin
Einar Guðnason gerir eina breytingu á sínu liði frá leiknum gegn Þór/KA en Bergdís Sveinsdóttir kemur inn og Jasmín Erla Ingadóttir fær sér sæti á bekknum.

FH gera tvær breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn Fram en hjá þeim koma inn Birna Kristín Björnsdóttir og Nia Raisa Christopher fyrir þær Berlindi Freyju Hlynsdóttur og Mackenzie Elyze Smith sem taka sér báðar sæti á bekknum.
Fyrir leik
Fanndís Friðriks spáir í spilin
Víkingur R. 1 - 2 FH
Þetta verður hörkuleikur. Vikes kemst í 1-0 en FH gefst ekki upp og þær skora tvö í seinni hálfleik. Aldís lokar rammanum í seinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH
Eftir að hafa byrjað mótið aðeins brösulega eru FHingar komnir á fljúgandi siglingu með fimm sigra í röð. Þær fengu Fram í heimsókn í síðustu umferð þar sem þær unnu sannfærandi 6-2 sigur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingar
Víkingar hafa ekki byrjað þetta mót eins vel og þær hefðu óskað sér og eru með níu stig eftir fyrstu sjö leikina, þrír sigrar og fjögur töp. Í síðustu umferð sóttu þær Þór/KA heim og sóttu þar góðan sigur í leik sem endaði 4-6.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikdagur í Víkinni
Verið velkomnir, kæru lesendur, í þessa beinu textalýsingu frá leik Víkings og FH í Bestu deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.