Leik lokið!
Leik lokið hér í Kórnum
Jafntefli niðurstaðan í kvöld! Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í kvöld.
93. mín
Tuð í Twana
Atli Þór Gunnarsson
92. mín
Horn fyrir HK
Gæti þetta verið síðasta tækifæri HK? Ívar Örn með fyrirgjöfina en Hjörvar kýlir frá.
89. mín
Rífur í Gunnleif Orra
Ívar Örn Jónsson
87. mín
Mikilvægt horn fyrir Grindavík
Sem er skallað í annað horn fyrir Grindavík. Ólafur greip þennan bolta.
86. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
85. mín
Horn fyrir HK
Arnþór Ari með sendinguna í gegn en Damir kemur boltanum í horn. Gunnleifur Orri hreinsar frá.
83. mín
Þvílíkir taktar
Karl fer á milli tveggja manna og nær föstu skoti sem fer rétt framhjá.
82. mín
InnViktor Helgi Benediktsson
ÚtSvavar Örn Þórðarson
Frábær leikur hjá Svavari í kvöld
78. mín
InnGunnleifur Orri Gunnleifsson
ÚtLárus Orri Ólafsson
78. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtTumi Þorvarsson
78. mín
InnAtli Hrafn Andrason
ÚtMagnús Arnar Pétursson
78. mín
InnDagur Ingi Axelsson
ÚtJóhann Þór Arnarsson
76. mín
Of seinn í tæklinguna
Arnþór Ari Atlason
76. mín
Flottir taktar og skot
Lárus Orri gerir vel og kemst í fínt skot sem fer rétt framhjá markinu.
72. mín
Allt jafnt hér og spennandi mínútur framundan!
Gegn gangi leiksins!
Rúnar Ingi Eysteinsson (stoðsending: Arnór Gauti Úlfarsson)
Rafael Victor gerir vel, kemur boltanum á Arnór Gauta sem brunar upp völlinn og finnur Rúnar Inga inni á teignum sem klobbar Ólaf í markinu.Allt jafnt hér og spennandi mínútur framundan!
68. mín
HK svo sannarlega betri í seinni hálfleik
HK að fá færi hér trekk í trekk. Grindavík komast varla í almennilega sókn hér í seinni hálfleik.
67. mín
InnRafael Alexandre Romao Victor
ÚtMikael Máni Þorfinnsson
Ungstirnið tekið af velli
65. mín
DAUÐAFÆRI!
Tumi fær boltann inni á teignum og nær góðu skoti sem fer í stöngina og aftur út í teiginn.
HK að ógna!
HK að ógna!
63. mín
Frábær fyrirgjöf hjá Svavari enn eina ferðina
Flott spil hjá HK sem endar í fyrirgjöf frá Svavari en skot Tuma er rétt framhjá.
60. mín
Skot og horn
Atli sýnir lipra takta og kemst í gott færi en skotið er varið í horn. Darraðadans inni á teignum eftir hornið sem endar með skoti yfir markið.
56. mín
Stoppar skyndisókn
Tumi Þorvarsson
54. mín
Þrumuskot!
Heiðar fær boltann úti hægra megin og tekur fast skot rétt yfir markið.
53. mín
Stoppar Skyndisókn
Haraldur Björgvin Eysteinsson
48. mín
Skot og horn
Arnþór Ari með góða sendingu á Jóhann en skot hans fer í varnarmann og í horn. Hornspyrnan fer þó yfir allan pakkann.
46. mín
Grindavík byrja seinni hálfleikinn
Grindavík sparka þessu í gang.
45. mín
Hálfleikur
Frábært að enda fyrri hálfleikinn á svona sturluðu marki. Grindavík lítið ógnað í fyrri hálfleik. HK hafa hins vegar verið að ógna mjög mikið og eru því sanngjarnt yfir að mínu mati.
Spennandi seinni hálfleikur framundan!
Spennandi seinni hálfleikur framundan!
43. mín
HK komnir aftur yfir.
ÞVÍLÍKT MARK!
Arnþór Ari Atlason
Arnþór Atli vinnur boltann á miðjunni, fer svo bara sjálfur og smellir honum í fjærhornið.HK komnir aftur yfir.
41. mín
Rangstaða
Ingi Þór með fyrirgjöf inn á teiginn en rangstaða dæmd.
36. mín
Fyrsta gula komið
Sindri Þór Guðmundsson
Sindri of seinn í tæklinguna og fær fyrsta gula spjald leiksins.34. mín
Jóhann kemst upp að endamörkum
Jóhann kemst upp að endamörkum og nær að gefa fyrir á Magnús Leif sem skýtur framhjá.
31. mín
Atli að gera vel
Atli snýr vel og kemst í fínt skot sem fer framhjá markinu.
HK að ógna mikið þessar síðustu mínútur.
HK að ógna mikið þessar síðustu mínútur.
28. mín
Dominik í góðu skallafæri
Svavar með góða fyrirgjöf á Dominik sem er einn á auðum sjó en skallinn er framhjá.
26. mín
Horn
Svavar með fyrirgjöfina inn á teiginn og Grindavík hreinsa yfir markið en ekkert verður úr þessari spyrnu.
25. mín
Horn fyrir HK
Horn eftir vörsluna en ekkert verður úr þessari spyrnu.
24. mín
DAUÐAFÆRI!
Haukur með frábæran bolta inn á teiginn á Dominik Radic en Hjörvar ver vel.
22. mín
Horn fyrir HK
Atli Þór með fyrirgjöfina en það er hreinsað frá.
20. mín
Mark beint úr aukaspyrnu!
Lárus Orri Ólafsson
Lárus Orri skorar beint úr aukaspyrnunni. Skotið hnitmiðað í nær, set smá spurningamerki við Ólaf í markinu.19. mín
Aukaspyrna á góðum stað
Lárus Orri að undirbúa sig til að taka hana.
15. mín
1-0 fyrir heimamenn eftir 15 mínútna leik.
Fyrsta markið komið!
Atli Þór Gunnarsson (stoðsending: Svavar Örn Þórðarson)
Svavar með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn, Atli Þór er ódekkaður og potar boltanum inn.1-0 fyrir heimamenn eftir 15 mínútna leik.
14. mín
Skot
Þorsteinn með sniðuga sendingu á Atla sem snýr en skotið er laust og Hjörvar grípur boltann.
12. mín
Skot og horn
Grindavík ná fínu skoti eftir fyrra hornið en Ólafur ver í horn en ekkert verður úr þessari hornspyrnu.
11. mín
Horn
Fyrsta horn Grindavíkur í kvöld
10. mín
Horn
HK að fá horn og kalla eftir hendi en Twana dæmir ekkert.
9. mín
Góður sprettur og fyrirgjöf
Jóhann frískur þessar fyrstu mínútur og tekur góðan sprett, sendir fyrir en Damir hreinsar frá.
2. mín
Skot
HK menn komast í fínt skotfæri, ná föstu skoti sem Hjörvar ver út í teiginn og Damir hreinsar frá.
1. mín
Horn
HK að fá fyrsta horn leiksins eftir fyrirgjöf frá Jóhanni en Grindavík skalla frá.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað!
HK sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Allt að verða klárt hér í Kórnum!
Liðin ganga út á völl, það fer verulega að styttast í að þetta byrji.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús!
Byrjunarlið kvöldsins eru komin inn og leikmennirnir eru byrjaðir að hita upp ásamt dómurum!
Fyrir leik
Dominik Radic
HK eru með markahæsta leikmann tímabilsins eftir 9 umferðir þrátt fyrir að vera í 6. sæti deildarinnar. Það er hann Dominik Radic sem gæti vel reynst vera sá leikmaður sem gerir gæfumuninn í kvöld.


Fyrir leik
Gengi Grindavíkur síðustu leiki
Grindavík fengu Fylki í heimsókn í síðustu umferð og töpuðu 0-1. Þeir áttu að keppa á móti Gróttu í 8. umferð en þeim leik var aflýst. Í 7. umferð heimsóttu þeir Þróttara í Laugardalnum og töpuðu þar 2-0. Grindavík var spáð 7. sæti fyrir tímabilið en sitja í 10. sæti með 10 stig. Það er óhætt að segja að tímabilið hafi verið vonbrigði eftir 9 umferðir.


Fyrir leik
Gengi HK síðustu leiki
HK gerðu sér ferð í Laugardalinn í síðustu umferð þar sem liðið mætti Þrótti. Þróttarar unnu þann leik 2-0. Í 8. umferð unnu HK mikilvægan 2-1 sigur á Aftureldingu í Kórnum. Liðið situr í 6. sæti deildarinnar með 15 stig en þeim var spáð 5. sæti fyrir tímabilið. Vestri eru í 5. sæti með 15 stig eins og HK. Það má því segja að tímabil HK hafi verið mjög fínt og þetta er gríðarlega mikilvægur leikur hér í kvöld.


Fyrir leik
Dómarateymið
Twana Khalid Ahmed er aðaldómari í dag, honum til aðstoðar eru þeir Guðni Freyr Ingvason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Eftirlitsmaður er Bergur Þór Steingrímsson.


Fyrir leik
Kórinn heilsar!
Kæru lesendur verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik HK og Grindavíkur í 10. umferð Lengjudeildar karla.





