SKÝRSLAN: Gullfótur Dagbjarts tryggði Völsungum stig
Hvað réði úrslitum?
Kraftur og kæruleysi í bland. Heimamenn í ÍR leiddu þægilega 3-1 í hálfleik og svo sem fátt sem benti til annars en að stigin þrjú yrðu eftir í Breiðholti í leikslok. Gestirnir frá Húsavík mættu þó af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og jafnaði verðskuldað. Þeir héldu svo áfram eftir að ÍR komst yfir á ný og tryggðu sér stig á eftirminnilegan hátt. Meira um það síðar.
Bestu leikmenn
1. Dagbjartur Búi Davíðsson
Voru aðrir leikmenn með meira framlag á öðrum sviðum á vellinum en hann? Já 100% en þetta mark maður...... erfiðleikastuðull upp á 11 í skotinu sem í 99 af 100 tilfellum flýgur hátt yfir. Það gerði það ekki í þetta sinn heldur söng í í bláhorninu sem skilar honum þessu í dag.
2. Víðir Freyr Ívarsson
Tvö mörk og unnið víti er fínt dagsverk fyrir sóknarþenkjandi leikmann. Svíður eflaust að það hafi ekki dugað til en Víðir vann vel fyrir sínu í dag.
Atvikið
Mark Dagbjarts Búa stendur auðvitað upp úr. Sá hitti hann vel! En það verður sömuleiðis að hrósa Borja Martin Iglesias fyrir þær skiptingar sem hann gerir en öll mörk Völsungs í síðari hálfleik voru gerð af varamönnum þar af tvö af mönnum sem komu inn í hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
Völsungur enn á botninum með 6 stig á meðan ÍR heldur 9.sætinu með 10 stig.
Vondur dagur
Erfitt að ætla sér að taka nokkurn leikmann út fyrir sviga. Það segir sig svo sem sjálft að varnarleikur var ekki upp á rosalega marga fiska í 4-4 jafntefli en hann var ekkert alslæmur heldur. En skortur á drápseðli hjá ÍR stuðar mig samt smá. Leikurinn var þeirra að vinna en í stað þess að drepa leikinn buðu þeir Völsungum upp í dans sem í lokin kostaði þá ansi mikið.
Dómarinn - 7
Vel dæmt hjá Jóhanni og hans teymi í leik sem svona utan frá séð virkaði ekki erfiður að dæma.


