Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta karla
Kaplakrikavöllur
FH
FH
1 - 1
Þór
Þór
Úlfur Ágúst Björnsson 23'1 - 01 - 174' Einar Freyr Halldórsson (víti)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Tíðindalítill botnbaráttuslagur

Hvað réði úrslitum?

FH skapaði sér fleiri færi, en flest skotin þeirra komu fyrir utan teiginn. Vörn Þórs var þétt og þeir skölluðu allar fyrirgjafir burt. Ég hélt þegar FH skoraði markið sitt að þeir myndu sigla þessu heim en það gerðist ekki.

Bestu leikmenn

1. Ásbjörn Líndal Arnarsson

Erfitt að velja einhvern sem mann leiksins, það er enginn sem er mjög augljósur kandídat. Eftir erfiðan leik gegn ÍBV þá var hann góður í dag, vörn Þórs var góð í dag, þrátt fyrir eitt trúða mark. Hjálpar að hann fékk víti.

2. Baldur Kári Helgason

Var öflugur á miðjunni og kom sér í fín færi, mikil vinnusemi í honum og hann spilaði mjög vel.

Atvikið

FH eru að sigla þessu heim þangað til að Kristján Flóki sparkar í Ásbjörn og Þórsarar fá víti, annars er ég sannfærður um það að FH myndi fara heim með stigin þrjú.

Hvað þýða úrslitin?

FH er enn á botninum með 6 stig, Þór er fyrir ofan þá með 7 stig. ÍBV sem er í 10. sæti er með 10 stig, FH spilar gegn ÍBV næst.

Vondur dagur

Kjartan Kári var ekkert að heilla mjög mikið. Hann vildi skora og var að skjóta fyrir utan teig mjög oft. Það voru líka nokkur atvik þar sem hann var að leitast eftir glufu í vörn Þórs til þess að ná að skjóta en það var engin opnun og endaði hann þá að hlaupa með boltann framhjá öllum teignum.

Dómarinn - 4

Jói Kalli minntist á það í viðtali að það voru nokkur önnur gul og rauð í leiknum, ég er sammála. Það voru nokkrar hörku tæklingar frá báðum liðum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.