Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetHelgi Inguson
Besta karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
1 - 1
Keflavík
Keflavík
Tryggvi Hrafn Haraldsson 19'1 - 01 - 171' Marin Mudrazija
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Góð frammistaða Vals ekki nóg gegn Keflvíkingum

Hvað réði úrslitum?

Valur var betra liðið í leiknum og óheppið að vinna ekki. Valsarar komust í margar góðar stöður en fóru oft illa að ráði sínu þegar þeir voru komnir á síðasta þriðjung. Keflavík er flott lið og refsuðu einfaldlega Valsmönnum.

Bestu leikmenn

1. Alpha Conteh

Var ótrúlega hættulegur í dag. Keyrði á Ingimar Stöle í hvert skipti sem hann fékk boltann. Var óheppinn að skora ekki í fyrri hálfleik en átti stoðsendingu.

2. Tryggvi Hrafn Haraldsson

Tryggvi var góður eins og oftast. Skoraði gott mark og hefði getað skorað fleiri. Ásgeir Orri var líka góður í marki Keflavíkur og hefði getað verið á þessum lista

Atvikið

Jöfnunarmark Keflavíkur. Valsmenn voru með góð tök á leiknum en Keflavík var alltaf hættulegt. Gestirnir fengu hornspyrnu sem þeir tóku stutt. Alpha Conteh átti flotta fyrirgjöf, sem rataði á pönnuna á Marin Mudrazija. Hann kláraði svo færið vel.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn eru komnir í 5. sæti deildarinnar með 16 stig eftir tólf leiki. Keflvíkingar eru búnir að leika 11 leiki og eru með12 stig í 7. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Það átti engin hauskúpuleik. Þetta var hins vegar vondur dagur fyrir Valsmenn. Liðið átti góða og kraftmikla frammistöðu en þó ekki nógu góða til þess að vinna leikinn.

Dómarinn - 7

Pétur leyfði leiknum að fljóta mjög vel og hafði alltaf góð tök á leiknum. Keflvíkingar vildu vítaspyrnu í fyrri hálfleik, það var erfitt að sjá hvort boltinn hafi farið í hendina á Ólafi Flóka og því ekki hægt að draga Pétur niður fyrir það.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.