SKÝRSLAN: Sterk frammistaða Vestra skilaði góðum sigri
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var frekar bragðdaufur í fyrri hálfleik og liðin ógnuðu lítið á mörk hvers annars. Í seinni hálfleik byrjuðu gestirnir úr Mosó mun betur og héldu boltanum mikið án þess að skapa sér færi, Vestri ná að koma inn marki og þá kom smá meðbyr með þeim um tíma. Á síðustu mínútunum sótti Afturelding á mörgum mönnum og af miklum krafti en náðu ekki að skora þrátt fyrir fín færi og Vestri refsuðu fyrir það þegar Breki skoraði mark í lok leiks sem kláraði leikinn fyrir Vestra.
Bestu leikmenn
1. Edson Eduardo Dias Gomes
Edson brasilíski miðvörður Vestra var frábær í vörninni í dag og gerði engin mistök, hann skallaði allt burt sem kom að marki Vestra og átti nokkrar sterkar tæklingar í leiknum.
2. Breki Þór Hermannson
Breki hefur verið að spila vel í undanförnum leikjum og breytti því ekkert í dag. Hann skoraði mark og lagði upp í dag.
Atvikið
Á 83 mínútu komst Joacim Holtan framherji Aftureldingar í dauðafæri í teig Vestra en Marvin var með snögg viðbrögð í marki Vestra og sá við honum. Hefði Holtan skorað þarna þá hefðu loka mínútur leiksins verið allt öðruvísi en þær voru.
Hvað þýða úrslitin?
Með þessum sigri lyfta Vestri sér upp í 2. sæti deildarinnar með 19 stig. Vestri hefur spilað 1-2 leikjum meira hin liðin í deildinni svo og þeir gætu fallið neðar á töfluna ef úrslit leikjanna í umferðinni fara gegn þeim.
Afturelding falla niður í 4. sæti deildarinnar og eins og með Vestra þá gætu þeir fallið niður um sæti í dag, ef HK vinnur Grindavík í kvöld.
Vondur dagur
Joacim Holtan var ekki nógu góður í dag, það sást lítið til hans í leiknum og hann klúðraði dauðafæri á 83. mínútu sem hefði heldur betur getað breytt gangi leiksins.
Dómarinn - 6
Arnar Ingi og hans menn voru ágætir í dag, leikurinn var ekkert sérstaklega erfiður að dæma og það voru nokkrir dómar sem voru furðulegir, en ekkert sem hafði stór áhrif á leikinn.


