Fotbolti.net
@fotboltinet Gylfi Már Þórðarson
Grótta
Grótta
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Skýjað, 12°C og léttur andvari. Fyrirtaks aðstæður til knattspyrnu
2 - 5
Fylkir
Fylkir
Björgvin Brimi Andrésson 8'1 - 0Mattías Kjeld 23'2 - 02 - 149' Guðmundur Tyrfingsson2 - 257' Aron Snær Guðbjörnsson2 - 359' Máni Austmann Hilmarsson2 - 467' Kári Sigfússon2 - 583' Guðmundur Tyrfingsson
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Ótrúlegur viðsnúningur á Vivaldi

Hvað réði úrslitum?

Hugarfar Fylkismanna þegar þeir komu út í seinni hálfleikinn. Eins og Heimir segir í viðtali eftir leik þá byrja þeir að spila meira sem lið í seinni hálfleik en ekki eins og 11 einstaklingar í fyrri hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Kári Sigfússon - Fylkir

Var sífellt ógnandi allan leikinn, skoraði gott mark og fór megnið af sóknum Fylkis í gegnum hann.

2. Guðmundur Tyrfingsson - Fylkir

Skorar tvö góð mörk. Fyrra markið úr feykilega öruggri vítaspyrnu og seinna með hrikalega nettri hælspyrnu. Virtist líða mjög vel inni á vellinum í dag, sérstaklega í síðari hálfleik. Hér er líka hægt að nefna Ólaf Kristófer Helgason markvörð Fylkis. Hann varði ótrúlega vel hvað eftir annað og hver veit hvað hefði gerst ef Gróttumenn hefðu sett þriðja markið.

Atvikið

Fyrsta mark Fylkis. Þeir komu einbeittir út í seinni hálfleikinn, skoruðu gott mark úr víti og fengu blóð á tennurnar. Það var ekki aftur snúið eftir það.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn fara aftur í annað sætið eftir að Vestri tóku það af þeim í stutta stund fyrr í dag. Grótta situr enn í 8. sætinu.

Vondur dagur

Það var enginn leikmaður í dag sem átti verri leik en einhver annar. Gróttumenn koma á hælunum út í seinni hálfleikinn, heldur værukærir og eftir korter voru þeir búnir að missa þægilega stöðu í það að vera undir 3-2. Ég set því vondan dag á Gróttuliðið í heild, það sem mætti út í seinni hálfleikinn.

Dómarinn - 8

Vel dæmdur leikur hjá Elíasi Inga og hans teymi. Vítadómurinn hárréttur og leyfði leiknum að flæða vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.