Fotbolti.net
Andri Stefánsson
HK
HK
Lengjudeild karla
Kórinn
2 - 2
Grindavík
Grindavík
Atli Þór Gunnarsson 15'1 - 01 - 120' Lárus Orri ÓlafssonArnþór Ari Atlason 43'2 - 12 - 272' Rúnar Ingi Eysteinsson
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Viðburðaríkt jafntefli í Kórnum

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum var færanýting HK. Þeir fengu klárlega fleiri og betri færi í kvöld en nýttu þau ekki. Grindavík fengu hins vegar fá færi en nýttu þau vel. Því fór sem fór.

Bestu leikmenn

1. Atli Þór Gunnarsson

Atli Þór var besti maður vallarins í kvöld. Hann skoraði fyrsta mark HK og skapaði usla allan leikinn.

2. Svavar Örn Þórðarson

Svavar var eins og veðhlaupahestur í kvöld. Var sífellt ógnandi með hraða sínum og krafti. Hann dældi inn frábærum fyrirgjöfum allan leikinn.

Atvikið

Jöfnunarmark Grindavíkur var atvik leiksins. Kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og sló HK menn út af laginu.

Hvað þýða úrslitin?

Sárgrætileg úrslit fyrir HK miðað við gang leiksins. Grindvíkingar geta farið sáttir heim á koddann með stig í hendi.

Vondur dagur

Það er erfitt að tala um vondan dag því HK spilaði vel þrátt fyrir grátleg úrslit. Eins og Gunnar Heiðar sagði: ,,Við áttum þennan leik algjörlega."

Dómarinn - 7

Twana var flottur í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.