Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
FH
FH
Besta karla
Kaplakrikavöllur
0 - 0
Þór
Þór
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Fyrir leik
Mættust síðast í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Áður en deildin byrjaði spiluðu FH og Þór í 32-liða úrslitum í Mjólkurbikarnum inni í Boganum. FH vann leikinn 2-4. Ragnar Óli skoraði fyrst fyrir Þór. FH skoraði svo fjögur mörk eftir að hafa lent undir, Arnór Borg og Kjartan Kári báðir með eitt, Adolf Daði skoraði tvö. Aron Ingi skoraði svo sárabótarmark fyrir Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarakvartett
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna. Gylfi Már Sigurðsson og Jovan Subic verða með flöggin. Helgi Mikael Jónasson verður með skiltið góða.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Umferðin
sunnudagur 21. júní 18:00 Breiðablik-KA 18:00 ÍBV-Stjarnan 18:00 FH-Þór 18:00 Valur-Keflavík 20:15 Fram-Víkingur R. mánudagur 22. júní 19:15 KR-ÍA
Fyrir leik
Með verstu markatöluna
Það gengur ekki vel hjá Þórsurum þessa daganna. Þór situr í 11. sæti með 6 stig. Tveir sigrar og átta töp, Þórsarar hafa fengið á sig flest mörk eða 27 mörk á sig, þeir hafa líka skorað fæst mörk eða 8 mörk. Þór er þá með verstu markatöluna í deildinni. Bjarni Guðjón og Christian Greko eru í banni.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Í síðasta leik tók Þór á móti ÍBV, Eyjamenn fóru með öll stigin þrjú heim. Fotbolti.net ræddi við Eið Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfara Þórs eftir leik, þar sagði hann að þeir væru ekki búnir að missa trúna. „Engin spurning. Annars værum við ekki áfram hérna. Við erum að læra 'the hard way' þessa dagana. Það er óþolandi að hugsa til þess að þetta séu sjö leikir í röð. Margir leikir sem mér finnst að hafi getað endað öðruvísi, hvort sem það er jafntefli eða sigur."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Er vegferðin byrjuð að virka?
FHingar unnu sinn fyrsta leik í deildinni gegn Keflavík í síðustu umferð. Fyrir leikinn gegn Keflavík var FH búin að tapa sjö leikjum og gera tvö jafntefli. Þrátt fyrir slæmt gengi þá sagði þjálfari FH, Jói Kalli að liðið væri á vegferð og að það þyrfti að sýna þolinmæði. Getur FH unnið annan leikinn í röð og tengt tvo sigra saman? Sjáum til.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Með sigrinum gegn Keflavík situr FH núna í 12. sæti með 5 stig. Mótherjar þeirra í dag eru í 11. sæti með sex stig og með sigri í dag getur FH farið yfir Þór í töflunni. Fyrirliðinn Ísak Óli Ólafsson er í banni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta Deildin heilsar
Heil og sæl kæru lesendur, það er komið að 11. umferð Bestu Deildarinnar. FH fær Þór í heimsókn á Kaplakrika og það er auðvitað bein lýsing frá vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.