Leik lokið!
Markasúpa í fyrri og hálf-leiðinlegur leikur í seinni! Skýrsla kemur fljótlega!
89. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtGuðfinnur Þór Leósson
Held að þetta sé rétt!
89. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
87. mín
Tumi að fara útaf held ég? Get ekki verið viss!
86. mín
Gult spjald
Orri Sveinn Segatta
Munnbrúkur86. mín
Theodór Ingi dæmdur rangstæður, Fylkismenn tjúllast út í aðstoðardómarann
85. mín
Fyndið hvernig tempóið fer rosalega hátt upp á köflum og verður allt hálf leiðinlegt! Lítið að gerast seinustu mínútur
78. mín
InnKristinn Ásgeir Þorbergsson
ÚtNikola Kristinn Stojanovic
Held það hafi verið svona! Músin hjá mér dó þannig ég þurfti að stökkva úr borðtölvunni í fartölvuna
74. mín
Þvílíkur darraðardans í teig Fylkis eftir hornspyrnu!! Boltinn endar svo á Sigurði Óla sem tekur skotið og hann fer í varnarmann og út í annað horn sem þeir ná svo ekki að nýta
71. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
71. mín
Horn fyrir Fylki
Ekki vel nýtt þessi
Eða hvað?! Boltann ratar í miðjubogann og þeir reyna fyrirgjöf inn í teig! En Wöhlerinn potar honum rétt yfir slánna!
Eða hvað?! Boltann ratar í miðjubogann og þeir reyna fyrirgjöf inn í teig! En Wöhlerinn potar honum rétt yfir slánna!
70. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtKári Sigfússon
70. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtDagur Traustason
69. mín
SVOOOOOOOOOOOO NÁLÆGT
FRÁBÆR SENDING FRÁ BJARKA! ADEYEMO TJIPPAR HONUM YFIR ÓLAF EN HANN VER Á LÍNU!!
68. mín
Bjarki Rúnar með geggjaðan sprett upp vinstri vænginn! Reynir fyrirgjöfina á Adeyemo til þess að klára þrennuna en hann hleypur of hratt og framhjá boltanum!
67. mín
Harley Willard með flott skot rétt fyrir utan teig hjá D-boganum! Vel varið hjá Ólafi!
66. mín
Jæja... Þrátt fyrir þessi mörk sem hafa komið gerist alls ekki mikið inn á milli.
60. mín
InnAlfredo Ivan Arguello Sanabria
ÚtBenedikt Þór Viðarsson
Lýsnadinn á Livey segir að Benedikt Þór hafi farið útaf í byrjun seinni hálfleiks. Vægast sagt áhugavert ef ekki eru um meiðsli að ræða
59. mín
Agalega lítið að gerast eftir þetta mark
50. mín
Alfredo Sanabria kom inná í byrjun seinni hálfleiks en ég hreinlega veit ekki fyrir hvern hann kom inná! Endileg látið mig vita fyrir hvern það var!
49. mín
ERUM VIÐ MEÐ LEIK?!?!
Jordan Adeyemo
Boltinn fer af Bjarka Steinsen og þetta er gjöf en ekki gjald fyrir Adeyemo!46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Ægismenn sparka þessu af stað
45. mín
+2
Fyrri hálfleikur búinn, þvílíka markasúpan hér! Tökum okkur korter!
45. mín
MAAAARK!
Jordan Adeyemo
Skil ekki hvað Ólafur er að gera í marki Fylkis! Jordan fær góða fyrirgjöf yfir miðlínuna, Ólafur er hlupinn út, svipað eins og dauðafæri Ægis fyrr í leiknum, en í þetta sinn nær Adeyemo að komast framhjá honum og skýtur honum laflaust inn!43. mín
Fínt skot frá Harley hægra megin við teig Fylkis en þetta er langt frá því að vera góð nýting. Beint á Ólaf
41. mín
Gult spjald
Nenad Zivanovic
Lýsandinn á Livey segir Nenad hafa fengið gult. Ábyggilega fyrir kjaftbrúk40. mín
HA?!?!?!?!
Arnór Breki Ásþórsson (stoðsending: Kári Sigfússon)
Fylkir fékk hornspyrnu, en hún virtist vera skökk! Kemur ekki Arnór Breki með þrumufleyg í hægra hornið utan úr teig!37. mín
EINN Á AUÐUM SJÓ!
Guðmundur Tyrfingsson (stoðsending: Bjarki Steinsen Arnarsson)
Sé ekki hver á sendinguna, hvort það sé Máni! Frábær fyrirgjöf frá honum og enginn Ægismaður að dekka Guðmund sem er stórhættulegur! Vörnin hefði átt að gera betur þarna35. mín
Auðvitað þegar ég segi þetta gerist eitthvað! Ægismenn áttu gott færi þarna sem þeir sóuðu, Nikola Kristinn hefði átt að skjóta fyrr! Boltinn fer útaf í markspyrnu
35. mín
Voðalega tíðindarlítið undanfarnar mínútur
27. mín
Harley með frábæra fyrirgjöf á Adeyemo, en hann hreinlega nær ekki að taka á móti honum. Hann heldur áfram að leita í hvern krók og kima að marki
26. mín
Lítið gerst. Rétt í þessu reyndi Adeyemo skot rétt eftir snúning frá ábyggilega meira en 30 metrum. Langt frá því að ógna Ólaf
20. mín
Jordan Adeyemo með skot sem fer beint á Ólaf í marki Fylkis, en hann var aðeins of fljótur á sér, AD dæmir rangstöðu
17. mín
Ægismenn fengu skyndisókn á 11. mínútu, en ég hreinlega náði ekki að klára að skrifa það fyrir markið hans Mána! Nikola Kristinn sýndist mér fá frábæran bolta í gegnum vörn Fylkis, hann reynir að hlaupa framhjá Ólafi Kristófer sem fór á móti en Óli gerir frábærlega og ver vel.
Hefði verið allt annar leikur ef hann hefði skorað
Hefði verið allt annar leikur ef hann hefði skorað
16. mín
Dagur með flotta spyrnu inn í teig. Ómar hleypur bara úr markmannsboxinu en Orri nær skallanum sem fer hátt upp í loft og endar rétt útaf
14. mín
BÆNG!
Tumi Fannar Gunnarsson
BOLTINN SKALLAÐUR FRÁ OG TUMI TEKUR HANN Í FYRSTA VIÐ D-BOGANN!! ÓVERJANDI FYRIR ÓMAR CASTALDO!! ÞETTA KALLAR MAÐUR Á GÓÐRI ÍSLENSKU THUNDERCUNT12. mín
FYLKISMENN KOMNIR YFIR
Máni Austmann Hilmarsson (stoðsending: Bjarki Steinsen Arnarsson)
Benedikt Þór með mjög slaka hreinsun sem er eins og gjöf fyrir Bjarka. Sendir á Mána sem er í góðu færi, nær síðan skotinu en manni fannst Ómar hefði getað gert betur9. mín
Paul Leonard með flottan sprett upp hægri kantinn. Arfaslök fyrirgjöf í lok færisins þó
7. mín
Fylkismenn búnir að vera sterkari þessar fyrstu mínútur
4. mín
InnBenedikt Þór Viðarsson
ÚtBenedikt Darri Gunnarsson
Benedikt Darri virðist meiðast. Maður sér samt ekkert hvað kom fyrir
1. mín
Fylkir sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Byrjunarliðsfréttir
Fyrirliðinn Stefan Dabetic nældi sér í rautt þannig hann verður ekki með í kvöld fyrir Ægi. Inn í hans stað kemur Benedikt Darri Gunnarsson.
Heimir gerir þrjár breytingar á sínu byrjunarliði. Máni Austmann, Tumi Fannar og Guðmundur Tyrfings koma inn, Eyþór Wöhler, Birkir Eyþórs og Theodór Ingi víkja.
Heimir gerir þrjár breytingar á sínu byrjunarliði. Máni Austmann, Tumi Fannar og Guðmundur Tyrfings koma inn, Eyþór Wöhler, Birkir Eyþórs og Theodór Ingi víkja.
Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir
Þessi lið eru að mætast í þriðja sinn í sögunni!
Fyrsti leikur liðanna var 26. júní 2022 í 16-liða Mjólkurbikarsins, en þar sigruðu Ægismenn á heimavelli 1-0, þar sem Ágúst Karel Magnússon skoraði dramatískt sigurmark á 93. mínútu til að senda Ægi áfram í 8-liða úrslit.
Lestu um leikinn
Öskubuskusaga þeirra endaði þó í 8-liða úrslitum á KA-vellinum, en KA sigraði Ægi 3-0.
Seinni viðureign þessara liða fór fram í 1. umferðinni í ar, en Fylkismenn sigruðu sannfærandi 3-0 sigur.
Fyrsti leikur liðanna var 26. júní 2022 í 16-liða Mjólkurbikarsins, en þar sigruðu Ægismenn á heimavelli 1-0, þar sem Ágúst Karel Magnússon skoraði dramatískt sigurmark á 93. mínútu til að senda Ægi áfram í 8-liða úrslit.
Lestu um leikinn
Öskubuskusaga þeirra endaði þó í 8-liða úrslitum á KA-vellinum, en KA sigraði Ægi 3-0.
Seinni viðureign þessara liða fór fram í 1. umferðinni í ar, en Fylkismenn sigruðu sannfærandi 3-0 sigur.
Fyrir leik
Fylkir
Fylkismenn hafa spilað 11 leiki á tímabilinu, en þeir hafa sigrað sjö leiki og tapað fjórum. Þeir sitja í 3. sæti með 21 stig.
Seinasti leikur Fylkis var á heimavelli gegn HK en þar fóru gestirnir með sigur af býtum og sigruðu 0-2.
Þeir hafa skorað 19 mörk og þeirra helsti markaskorari hefur verið Guðmundur Tyrfingsson með 6 mörk.
Seinasti leikur Fylkis var á heimavelli gegn HK en þar fóru gestirnir með sigur af býtum og sigruðu 0-2.
Þeir hafa skorað 19 mörk og þeirra helsti markaskorari hefur verið Guðmundur Tyrfingsson með 6 mörk.

Fyrir leik
Ægir
Ægismenn hafa átt erfitt tímabil hingað til, en þeir sitja í 11. sæti með aðeins 8 stig eftir 12 leiki. Seinasti leikur Ægis var alls ekki góður leikur fyrir þá, en þeir fóru í heimsókn til Aftureldingar, sem kjöldróg þá 8-1. Einnig fékk Stefan Dabetic rautt spjald fyrir mjög slæmt brot.
Þeir hafa skorað 13 mörk, en þeirra helsti markaskorari hefur verið Harley Willard með 4 mörk.
Þeir hafa sigrað tvo það sem er af deildarkeppninni, Völsung og ÍR.
Þeir hafa skorað 13 mörk, en þeirra helsti markaskorari hefur verið Harley Willard með 4 mörk.
Þeir hafa sigrað tvo það sem er af deildarkeppninni, Völsung og ÍR.

Fyrir leik
Dómaramál
Dómari leiksins er Brynjar Þór Elvarsson. Honum til halds og trausts eru Daníel Ingi Þórisson og Kristinn Freyr Victorsson. Dómaraeftirlitsmaður er Þórður Georg Lárusson.

Fyrir leik
Gott kvöld og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá GeoSalmo vellinum á Þorlákshöfn, en hér munu Ægir og Fylkir takast á í 12. umferð Lengjudeildarinnar!




