Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta kvenna
VÍS völlurinn
Þór/KA
Þór/KA
0 - 0
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
Dómari: Sveinn Arnarsson
Fyrir leik
Þriðja liðið
Sveinn Arnarsson er með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar eru þau Sváfnir Ragnarsson og Leyla Ósk Jónsdóttir. Fjórði dómari er Aðalsteinn Tryggvason og Tryggvi Þór Gunnarsson er eftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Staðan í deildinni og gengi liðanna
Heimakonur í Þór/KA sitja í 9. sæti deildarinnar sem eru mikil vonbrigði. Liðið vann sinn fyrsta sigur í síðustu umferð þegar Þróttur kom í heimsókn en fyrir það var liðið einungis með þrjú stig. Grindavík/Njarðvík, sem kom upp úr Lengjudeildinni síðasta haust, situr í 6. sæti með sex stigum meira en Þór/KA. Nýliðarnir hafa einungis unnið einn af síðustu fimm en eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Fyrri leikur liðanna endaði með 2-1 endurkomu sigri Suðurnesjakvenna en sigurmarkið kom undir lok leiks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Thelma Karen spáir útisigri
Landsliðskonan Thelma Karen Pálmadóttir spáir í leiki umferðarinnar. Þór/KA 0 - 2 Grindavik/Njarðvík Frekar rólegur leikur en Grindavík/Njarðvík með yfirhöndina mest megnis af leiknum. Markalaust í hálfleik. Hildur skorar svo banger í seinni hálfleik eftir að hafa sólað fjórar og skorar svo annað mark í lok leiks
Fyrir leik
Velkomin á VÍS völlinn
Góða kvöldið lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Grindavíkur/Njarðvíkur í 10. umferð Bestu deildar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á VÍS vellinum á Akureyri.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.