SKÝRSLAN: Tíðindalítill hitaleikur
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn í dag var ekki sá skemmtilegasti, byrjaði mjög vel fyrir ,,neutrals". Þrjú gul eftir 7 mínútur, þar sem Alpha slær Örvar í andlitið, Waren var eitthvað ósáttur og Sindri Snær lætur hann heyra það. Það var smá hiti í þessu. Það voru fá dauðafæri og fyrir utan markið þá fengu bæði lið bara eitt alvöru færi. Bæði lið voru alveg þétt og og vörðu markið sitt vel. Rauða spjaldið breytti samt leiknum þar sem Conteh var að skapa mest af færum fyrir Keflavík, þegar hann fór út af þá datt sóknin þeirra alveg niður. Einu hættulegu sóknirnar hjá Keflavík komu þegar Ásgeir Orri var að taka markspyrnu og vörnin hjá Stjörnunni leyfði boltanum að skoppa. Mudrazija komst í eitt svoleiðis færi en skotið var lélegt. Stjarnan var ekki að skapa sér nein alvöru færi líka, mikið af fyrirgjöfum sem vörnin hjá Keflavík var ekki í vandræðum með. Ef þú hefðir sagt mér að þetta væri 11 á móti 11 þá myndi ég trúa þér.
Bestu leikmenn
1. Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
Var mjög góður og þegar hann var að senda yfir á hinn kantinn voru perfect, væri áhugavert að sjá ,,completion rate". Gerði ekkert rangt og á skilið að vera hér. Öruggur í sínu.
2. Bjarki Hauksson (Stjarnan)
Skoraði og hélt hreinu laki. Fyrir utan það tvennt var hann mjög góður, var hættulegur á kantinum og komst í góðar stöður. Eina sem dregur hann niður er að fyrirgjafirnar inn í teiginn í fyrri hálfleik voru allar of fastar, þær voru að fara yfir allan teiginn. En Bjarki lagaði það í seinni. Vil nýta þennan dálk líka til þess að hrósa Agli Val, varnarmanni Keflavíkur sem var að spila fyrsta leikinn sinn. Hann var mjög góður, átti ekki að fá gult og var að kasta sér fyrir öll skot. Flottur leikur hjá honum.
Atvikið
Rauða spjaldið setur mikinn svip á leikinn, Keflavík hefði líklega gert meira og kannski jafnað ef hann hefði verið inn á.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er komið í 7 sætið með 21 stig. Keflavík er í 6. sæti með 22 stig. Keflavík fer til Akureyrar í næstu umferð og spilar á móti Þór, á meðan Stjarnan fer í heimsókn í Úlfarsárdalinn.
Vondur dagur
Mjög auðvelt að setja Conteh hérna, þetta var vissulega vondur dagur hjá honum. Birnir var líka ekki góður í dag, hornin sem hann tók voru stundum alls ekki góð, skapaði lítið. Mudrazija sem kom inn á, fékk eina alvöru færi Keflvíkinga en skotið var mjög lélegt.
Dómarinn - 3
Úff, annað gula spjaldið á Conteh. Mér fannst þetta alls ekki vera annað gult og hann hefði alveg mátt sleppa því. Dómurinn var ansi strangur og setur mikinn svip á leikinn. Egill Valur fær svo gult spjald sem mér fannst alls ekki eiga að vera gult. Skrýtið að dæma á þetta.




