SKÝRSLAN: Völsungssigur í markaleik á Húsavík
Hvað réði úrslitum?
Heilt yfir voru heimamenn sterkari aðilinn í leiknum en það sem réði úrslitum í dag var að í Völsungsliðinu er eitt stykki Elfar Árni Aðalsteinsson.
Bestu leikmenn
1. Elfar Árni Aðalsteinsson
Auðvelt val. Hann er svo góður í fótbolta. Mig er farið að skorta orð til að lýsa aðdáun minni á honum. Sennilega fáir á landinu sem eru jafn mikilvægir fyrir sitt lið eins og Elfar er fyrir Völsung.
2. Tómas Bjarni Baldursson
Tómas bæði skoraði og lagði upp og eins og alltaf þá hljóp hann og barðist eins og ljón. Allir spánverjarnir í Völsungsliðinu voru einnig frábærir í dag en Tómas á skilið að vera hér.
Atvikið
Sigurmark Elfars. Þegar Elfar nær stöðu með varnarmann í bakinu þá veit maður að það er töpuð barátta fyrir varnarmanninn. Enn og aftur sýnir hann styrk sinn og klókindi og kláraði þetta afar vel.
Hvað þýða úrslitin?
Völsungar eru komnir með 14 stig og eru greinilega ekki búnir að segja sitt síðasta í þessari fallbaráttu.
HK misst af dýrmætum stigum í umspilsbaráttunni og Grótta sem á leik til góða gæti komist uppfyrir Kópavogsbúa í síðasta umpsilssætið.
HK misst af dýrmætum stigum í umspilsbaráttunni og Grótta sem á leik til góða gæti komist uppfyrir Kópavogsbúa í síðasta umpsilssætið.
Vondur dagur
Það eru margir í HK liðinu sem að koma til greina hér. Varnarmenn þeirra voru oft úti á túni í dag. Dominik Radic komst einnig aldrei almennilega inn í leikinn og og Albizuri í vörn Völsungs var með hann í vasanum.
Dómarinn - 7
Fullt af atriðum sem að maður var ósammála í hita leiksins en heilt yfir var þetta bara vel dæmt.


