Fotbolti.net
Besta deildin
Helgi Inguson
Besta karla
Víkingsvöllur
Sól og blíða
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 2
ÍBV
ÍBV
0 - 12' Sesar Örn HarðarsonDaði Berg Jónsson 43'1 - 1Sveinn Margeir Hauksson 47'2 - 12 - 289' Vicente Rafael Valor Martínez (víti)
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
Pétur flautar þetta af. Sölvi væntanlega svekktur með úrslitin. Þetta var hins vegar ekkert sérstakur leikur hjá Víkingum og Eyjamenn fengu fín færi.

Viðtöl og skýrsla væntanleg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
94. mín
Stígur Diljan klaufskur og gefur Eyjamönnum aukuspyrnu sem ekkert verður úr
93. mín
Víkingur fær hornspyrnu, skallað frá
91. mín
Fjórar mínútur í uppbót
ÍBV
89. mín
Eyjamenn jafna metin!

Vicente Rafael Valor Martínez

Sendir Aron í vitlaust horn
Víkingur R.
88. mín
Gult spjald

Sveinn Gísli Þorkelsson

88. mín
Eyjamenn fá vítaspyrnu!
Sveinn Gísli er klaufi og sparkar í Mattias Edeland
87. mín
ÍBV líklegri aðilinn þessa stundina
ÍBV
81. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Víkingur R.
78. mín
InnSveinn Gísli Þorkelsson
ÚtRóbert Orri Þorkelsson
ÍBV
76. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtOmar Sowe
Víkingur R.
76. mín
Gult spjald

Gylfi Þór Sigurðsson

Víkingur R.
73. mín
InnHrannar Snær Magnússon
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
Hrannar Snær að spila sínar fyrstu mínútur fyrir Víking, stúkan tekur við sér
Víkingur R.
73. mín
InnKarl Friðleifur Gunnarsson
ÚtHelgi Guðjónsson
ÍBV
71. mín
InnVitor Hugo Cruz Rocha
ÚtMilan Tomic
ÍBV
71. mín
InnAron Lucas Vokes
ÚtSesar Örn Harðarson
Víkingur R.
71. mín
Gult spjald

Davíð Örn Atlason

70. mín
Stígur með skot eftir flotta sókn Víkinga, Ari ver
68. mín
Viggó með gott skott fyrir utan teig sem fer rétt framhjá
Víkingur R.
65. mín
InnStígur Diljan Þórðarson
ÚtDaði Berg Jónsson
Markaskorararnir fara útaf
Víkingur R.
65. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtSveinn Margeir Hauksson
Markaskorararnir fara útaf
60. mín
Daði klaufi
Flott spil hjá Víkingum. Viktor Örlygur leggur hann fyrir markið en Daði hittir boltann illa
55. mín
DAUÐAFÆRI
Vicente Valor með frábæra sendingu á Omar Sowe sem tekur boltann niður með ótrúlegri mýkt. Er einn gegn Aroni en skýtur yfir.

Hann trúir því ekki sjálfur að hann hafi klúðrað þessu
54. mín
Ármann Ingi með hættulega takta, leikur á mann og annan áður en hann rennir honum á Valdimar sem tekst einhvern veginn ekki að skora. Aðstoðardómarinn dæmir markspyrnu, Ármann hefur misst hann útaf
52. mín
Daði með fína skottilraun sem Ari ver
48. mín
Eyjamenn nærri því að jafna
Omar Sowe á hægri kantinum, kemur með sendingu inn í Viggó sem er einn og yfirgefinn en nær ekki að stýra honum á markið. Viggó var líklega einu skrefi of seinn og erfitt að setja þá kröfu að hann eigi að klára færið þó það hafi verið gott.
Víkingur R.
47. mín
Víkingar komnir yfir!

Sveinn Margeir Hauksson (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

Ármann finnur Gylfa í hættulegri stöðu. Hann rennir honum á Svein Margeir sem á gott skot í nærhornið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV
46. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtRóbert Elís Hlynsson
Linta gerir breytingu í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Gylfi sparkar seinni hálfleik af stað
45. mín
Fleiri myndir frá Hafliða Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Daði Berg fagnar marki sínu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikstölfræði
Mynd: Fótbolti.net

45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik
Hálfleikstölur 1-1. Eyjamenn komust snemma yfir og gerðu vel eftir það. Víkingur náði hins vegar mikilvægu jöfnunarmarki undir lok hálfleiks. Tökum okkur 15.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R.
43. mín
Á markamínútunni!

Daði Berg Jónsson (stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson)

Víkingur vinnur boltann ofarlega eftir slæma sendingu frá Ara. Helgi Guðjóns með fyrirgjöf inn í teig á Valdimar sem er í baráttunni. Spurning hvort skalli hans hafi farið af varnarmanni því hann fór a.m.k. frá markinu og beint til Daða. Daði skallar hann í fjærhornið, yfir Ara.
43. mín
Víkingur fær aukaspyrnu eftir að Sesar braut á Ármanni. Fyrirgjöf Gylfa er góð en finnur þó engann
40. mín
Hér má sjá Eyjamenn fagna marki sínu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV
39. mín
Gult spjald

Mattias Edeland

Tæklar Valdimar á vallarhelmingi Víkinga
34. mín
Lófatak
Omar Sowe í góðri stöðu en er dæmdur rangstæður. Stuðningsmenn Víkinga taka við sér og klappa kaldhæðnislega en þeir vilja væntanlega meina Róbert Elís hafi verið rangstæður í marki ÍBV
30. mín
Daði Berg er aleinn en sendingin frá Ármanni Inga er of laus. Daði hefði getað komist í einn á einn stöðu
Víkingur R.
29. mín
Gult spjald

Ármann Ingi Finnbogason

Stöðvar Eið Atla
27. mín
Ármann Ingi með baneitraða fyrirgjöf á fjærstöng þar er Sveinn Margeir sem sendir hann út í teiginn. Það er enginn þar, spurning hvort Sveinn hefði átt að skjóta
22. mín
Heimamenn töluvert líklegri
Leikurinn er að fara fram á vallarhelmingi gestanna eins og við má búast þegar Víkingur lendir undir. Eyjamönnum líður ágætlega en Víkingur heldur áfram að banka án þess að skapa sér dauðafæri.
ÍBV
19. mín
Gult spjald

Milan Tomic

Rífur í Davíð til þess að stöðva góða sókn
17. mín
Daði nærri því
Víkingar búnir að pinna gestina niður í eigin vítateig. Gylfi með sendingu þvert fyrir markið á Daða en Ari ver lúmskt skot hans
14. mín
Sesar nærri því að bæta öðru við
Er í baráttu við Davíð um boltann á vinstri kantinum en Davíð rennur og Sesar er þá kominn í vænlega stöðu. Reynir að smyrja boltann í vinkilinn fjær en yfir fer hann
9. mín
Hætta
Helgi Guðjóns með sendingu fyrir á Valdimar sem hittir ekki boltann í góðri stöðu. Þá fær Ármann Ingi boltann en skot hans er beint á Ara
ÍBV
6. mín
Gult spjald

Arnór Ingi Kristinsson

Rífur Daða Berg niður
ÍBV
2. mín
VÁÁÁÁÁ, Eyjamenn komnir yfir

Sesar Örn Harðarson (stoðsending: Róbert Elís Hlynsson)

Róbert Elís sleppur einn í gegn eftir sendingu frá Vicente Valor sem var líklega ætluð Omar Sowe, Víkingar vilja rangstæðu á Róbert. Róbert vippar boltanum yfir Aron Snæ á fjærstöng þar sem Sesar Örn er mættur og tæklar knettinum í markið.
1. mín
Leikur hafinn
Eyjamenn hefja leik hér í blíðunni
Róbert Elís sparkar þessu í gang
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús
Þjálfararnir gera samtals 10 breytingar á sínum liðum frá síðustu leikjum liðanna. Þrír leikmenn eru í leikbanni í dag, þar á meðal Oliver Ekroth. Þá snýr Omar Sowe til baka eftir að hafa tekið út tveggja leikja bann.

Fyrir leik
Víkingur skorar að meðaltali 3,3 mörk í deildinni
Fyrir leik
Óðinn spáir í 18. umferðina
Óðinn Bjarkason, leikmaður Aftureldingar og markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar, er spámaður vikunnar. Spá hans er stórskemmtileg og ég mæli hiklaust með því að lesendur ýti á fréttina fyrir neðan og lesi hvað hann hafði að segja um hina leiki umferðarinnar.

Víkingur R. 4 - 1 ÍBV
„Mikið fjölmiðlafár verður fyrir leik þar sem Stígur Diljan mætir í heilgalla frá fatamerkinu Forever In Fashion í stað mætingargalla Víkinga. Fær hann væntanlega væna sekt fyrir vikið. Samt sem áður verða yfirburðir Audda Blö og hans manna of miklir og fara þeir létt með leikinn þrátt fyrir langan meiðslalista innan herbúða þeirra. Stígur svarar fyrir fatavalið og fer hamförum í leiknum ásamt Daða Berg. Stígur setur tvö stykki, Daði leggur þau bæði upp og setur eitt sjálfur. Óskar Bogga brosir sínu breiðasta í stúkunni og í hans stað kemur brosmildur Hrannar Snær inn á völlinn. Hrannar sýnir hundinn í sér og skorar eftir frábæran undirbúning frá Mosfellska prinsinum Róberti Orra. Annar Róbert, Róbert Elís, klórar í bakkann undir lokin fyrir Eyjamenn. Þung bátsferð heim fyrir Eyjamenn en Herjólfsskipið helst óbrennt. Lokatölur 4-1."


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Vendingar í Víkinni
Það var nóg af fréttum úr Víkinni þessa vikuna. Eftir leik FH og KR greindi Fótbolti.net frá því að FH hefði samþykkt kauptilboð frá Víkingi í Kjartan Kára, en Víkingur var í leit af kantmanni eftir að Óskar Borgþórsson ökklabrotnaði. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var hluti af tilboði Víkings að FH fengi Erling Agnarsson í skiptum.

Viðræður við Kjartan Kára sigldu hins vegar í strand og er hann ekki á leið til Íslandsmeistaranna. Erlingur samdi þó við FH og mun leika með Hafnfirðingum út tímabilið. Víkingur komst þá að samkomulagi við Kristiansund um kaupverð á Hrannari Snæ Magnússyni, sem skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning. Hrannar lék frábærlega með Aftureldingu í fyrra og gekk til liðs við Kristiansund í kjölfarið.


Mynd: Víkingur
Fyrir leik
Íslandsmeistararnir
Víkingur er á toppi deildarinnar með 44 stig, sjö stigum fyrir ofan Fram í öðru sætinu. Eftir að hafa verið óstöðvandi afl fyrri hluta sumars hefur aðeins hægst á Víkingum, liðið hefur safnað fjórum stigum af síðustu níu mögulegum. Það eru ýmsar skýringar á því, meðal annars meiðsli hjá lykilmönnum og mikið Evrópuálag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikmenn sem taka út leikbann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarki Björn Gunnarsson og Felix Örn Friðriksson verða ekki með ÍBV. Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, fékk rautt spjald gegn ÍA og verður því ekki með í kvöld.
Fyrir leik
Hitað var upp fyrir umferðina í útvarpsþættinum
Fyrir leik
Markmannsmálin í Vestmannaeyjum
ÍBV er í þéttum pakka í neðri hluta deildarinnar, liðið er í 9. sæti með 16 stig. Eftir að hafa verið eitt heitasta lið deildarinnar hefur Eyjamönnum fatast flugið, liðið hefur aðeins nælt sér í eitt stig í síðustu fjórum leikjum.

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, hefur ekki styrkt leikmannahópinn af ráði. Markvarðarbreytingin var gerð á dögunum en Serbinn Ivan Vidrih kemur inn fyrir Marcel Zapytowski sem vildi fara frá félaginu eftir bekkjarsetu í sumar. Ari í Haraldsstovu hefur verið aðalmarkvörður liðsins og spurning hvort Ivan nái að vinna sig inn í byrjunarliðið.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Pétur Guðmundsson dæmir leikinn. Honum til halds og trausts verða aðstoðardómararnir Gylfi Már Sigurðsson og Jovan Subic. Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er fjórði dómari og Viðar Helgason eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin í Víkina
Heil og sæl öllsömul og verið þið velkomin í textalýsingu frá leik Víkings og ÍBV í 18. umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 hér á Víkingsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

sunnudagur 9. ágúst
18:00 ÍA-Þór (ELKEM völlurinn)
18:00 Víkingur R.-ÍBV (Víkingsvöllur)
18:00 Stjarnan-Keflavík (Samsungvöllurinn)
18:15 KA-FH (Greifavöllurinn)
20:15 Breiðablik-Valur (Eikarvöllurinn)

mánudagur 10. ágúst
19:15 Fram-KR (Lambhagavöllurinn)

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.