SKÝRSLAN: Svartir tímar á Brekkunni
Hvað réði úrslitum?
KA liðið heldur áfram að vera í bakkgír sóknarlega og það er augljóst að þetta slæma gengi er farið að hafa veruleg áhrif á hugmyndaauðgi og sköpunargleði liðsins á síðasta þriðjungnum. FH-ingar voru klárir í baráttuna og unnu vel fyrir sigrinum í dag. Þeir voru stærstan hluta leiksins þéttir og vel skipulagðir og því vel að sigrinum komnir.
Bestu leikmenn
1. Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Flestallt sem vel gekk sóknarlega hjá FH var í gegnum Kjartan. Hann var áræðinn, óþreytandi í pressu og lagði upp sigurmarkið á Ísak Óla.
2. Jökull Andrésson (FH)
Öruggur í öllum sínum aðgerðum og lokaði virkilega vel á Jakob Héðinn þegar að framherjinn ungi slapp í gegn.
Atvikið
Leikurinn var frekar tilþrifalítill, en markvarsla Jökuls gegn Jakobi var gríðarlega mikilvæg fyrir gestina. Jökull virðist fullur sjálfstrausts og þessi markvarsla hefur líklega ekki gert neitt til þess að draga úr því.
Hvað þýða úrslitin?
FH stekkur upp fyrir KA með sigrinum og eru nú í 10. sæti með 17 stig. KA menn verma nú næst neðsta sætið og eru með 15 stig. Þeir eru fyrir ofan granna sína í Þór vegna betri markatölu. KA menn mæta Val næst á útivelli, en FH fær Íslandsmeistara Víkings í heimsókn.
Vondur dagur
Sóknarleikur KA hneppir hnossið í dag. Enginn hraði, kæruleysi í sendingum og móttökum og alltof oft sem að leikmenn voru hreinlega einangraðir á boltanum og fengu enga aðstoð. Í liðinu hlýtur að búa meira en þetta, ef einungis er tekið mið af þeim prófílum sem að spila í fremstu víglínu hjá KA. Nú fer þó hver að verða síðastur að kippa hlutunum í liðinn.
Dómarinn - 7
Fannst hann bara halda ágætri línu í dag.




