SKÝRSLAN: Langþráður Valsarasigur
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mikið ströggl í fyrri hálfleiknum og hefði getað farið á báða vegu. Ég held bara að þrautseigjan í Val sigldi þessu heim fyrir þá, Blikar áttu mörg góð færi en gátu bara ekki klárað mest megnið af þeim.
Bestu leikmenn
1. Tryggvi Hrafn Haraldsson
Frábært skallamark hjá honum og geggjuð stoðsending líka. Hefði getað vippað honum yfir Anton en gaf Jónatan sviðsljósið.
2. Anton Ari Einarsson
Ég veit, ég veit, hann fékk þrjú mörk á sig, en hann átti frábærar vörslur í þessum leik úr efstu hillu! Ef annar hefði verið í marki hefði munurinn verið meiri í markatölu.
Atvikið
Markið hjá Degi var algjört augnakonfekt að horfa á, en svo líka var seinasta markið frábærlega gert líka. Svo var líka furðulegt atvik þegar að mér sýndist styrktarþjálfari Breiðabliks fá rautt spjald. Sá ekki alveg hvað gerðist en hann kastaði víst æfingakeilu eitthvað harkalega eftir eitthvað sem hann var ekki sáttur við .
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik situr ennþá í sínum eigin heimi í 4. sæti 7 stigum frá bæði 3. og 5. sæti. Valsmenn eru hinsvegar komnir yfir Keflavík og sitja í 5. sæti, 7 stigum frá Breiðablik.
Vondur dagur
Það að sóknin hjá Blikum kláruðu ekki meiri færi var ótrúlegt. Komust í mörg færi sem þeir hefðu getað skorað úr en einhvern veginn kilkkaði það bara hjá þeim.
Dómarinn - 6
Siggi Hjörtur ágætur og leyfði leiknum að flæða en var með soldið spes dóma á köflum. Heilt yfir ágætur!




