SKÝRSLAN: Skagamenn geta andað léttar
Hvað réði úrslitum?
Skagamenn mættu mun sterkari til leiks, og áttu sigurinn svo sannarlega skilið. Mér fannst ÍA koma af miklum krafti og voru strax á fyrstu 5 mínútunum byrjaðir að skapa sér 3-4 hættulegar stöður. Þórsarar sköpuðu sér í raun 2-3 hættur í þessum leik, en sóknarmenn Þórs áttu erfitt með að finna opnanir á vörn Skagamanna. Í raun sem réði úrslitum í stuttu máli var meiri kraftur og klisjan þeir vildu þetta meira
Bestu leikmenn
1. Erik Tobias Sandberg
Erik var gjörsamlega frábær, hann á tvö stór móment tækling sem hann átti á Victor Bertomeu sem bjargaði mögulegu marki. Svo skoraði hann seinna mark Skagamanna sem tryggði sigurinn. Erik á þennan titil skilið.
2. Árni Marínó
Árni var einnig mjög góður í dag, var öruggur í öllum sínum aðgerðum og átti einnig mjög góða vörslu undir restina sem gerði það að verkum að Þór fundu aldrei lyktina af jafnteflinu.
Atvikið
Ætla segja þegar Steinar Þorsteins átti að fá víti í upphafi leiks, hann snýr varnarmann Þórs af sér og fellur við mér fannst það mögulega víti.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða það að Þór eru komnir á botninn aftur í Bestu deildinni ásamt nágrönnum sínum í KA, sem eru einnig í fallsæti. ÍA eru komnir smá úr fallbaráttunni í bili að minnsta kosti, eru 7 stigum frá fallsæti með 22 stig.
Vondur dagur
Ætla gefa Victor Bertomeu þennan titil í dag, átti vondan dag og sást eiginlega ekkert vantar kannski upp á leikform. En Victor var slappur í dag var í lás hjá Erik Tobias Sandberg og Baldvini. Einnig ætla ég segja Birgir Ómar hann var í smá basli en hann kemur óvænt inn í liðið fyrir Ásbjörn sem meiddist í upphitun, en Birgir áttu ekkert spes dag.
Dómarinn - 7
Gunnar Oddur var góður í dag eina sem ég hef útá hann að setja er að mér fannst ÍA eiga að fá víti þegar Steinar Þorsteins féll við inní teig. Annars var þetta erfiður leikur að dæma og Gunnar dæmdi hann vel.




