ÍBV er í þéttum pakka í neðri hluta deildarinnar, liðið er í 9. sæti með 16 stig. Eftir að hafa verið eitt heitasta lið deildarinnar hefur Eyjamönnum fatast flugið, liðið hefur aðeins nælt sér í eitt stig í síðustu fjórum leikjum.
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, hefur ekki styrkt leikmannahópinn af ráði. Markvarðarbreytingin var gerð á dögunum en Serbinn Ivan Vidrih kemur inn fyrir Marcel Zapytowski sem vildi fara frá félaginu eftir bekkjarsetu í sumar. Ari í Haraldsstovu hefur verið aðalmarkvörður liðsins og spurning hvort Ivan nái að vinna sig inn í byrjunarliðið.
Pétur Guðmundsson dæmir leikinn. Honum til halds og trausts verða aðstoðardómararnir Gylfi Már Sigurðsson og Jovan Subic. Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er fjórði dómari og Viðar Helgason eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin í Víkina
Heil og sæl öllsömul og verið þið velkomin í textalýsingu frá leik Víkings og ÍBV í 18. umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 hér á Víkingsvelli.