Fotbolti.net
Besta deildin
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Besta karla
Eikarvöllurinn
Breiðablik
Breiðablik
0 - 0
Valur
Valur
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Fyrir leik
Spá leiksins!
Óðinn Bjarkason, leikmaður Aftureldingar, tók að sér það verkefni að spá í leikina sem framundan eru og henti í þessa virkilega skemmtilegu spá fyrir þennan leik, hálfgerða ritgerð meira að segja!

Breiðablik 2 - 1 Valur (20:15 í kvöld)
Hlutlaus maður, hann Birkir Már, spáði leiknum 0-5 fyrir Val og Patrick Pedersen fernu. Ég gaf honum einfalt svar „líklegt dagsins“. Stefán verður óvænt í marki Valsmanna og minnkar það bras Chris Brazell í deildinni. Breiðablik stillir upp ógnarsterku liði og ef allt fer eins og það á að fara eiga Blikar hreinlega að vinna leikinn þar sem Valur er í miðju Evrópueinvígi. Óli Valur stendur sig vel í leiknum og svífur upp hægri hlið vallarins eins og honum er best lagið. Dagur Orri leggur hönd á plóg og setur eitt í fyrri hálfleik. Ólafur Ingi gerir taktíska breytingu í hálfleik, setur Ásgeir Orra inn og fær hann til að stíga mikið inn á miðsvæðið. Óli á svo flotta fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Ásgeir þakkar traustið, stekkur manna hæst og skallar hann í slánna og inn. Undir lokin kemst nýi USA maðurinn Thorleifur í gegn og neglir í þaknetið, fagnar því marki með Trump-dansi. Lokatölur 2-1.
Fyrir leik
Glugginn
Nú í gær var hann Þorleifur Úlfarsson kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks, en hann kemur til þeirra aftur frá USL-deildarliðinu Loudoun United. Þorleifur er með leikheimild og verður þá ábyggilega til í slaginn í kvöld. Á tímabilinu hjá Loudoun hefur hann skorað átta mörk og náð tveimur stoðsendingum.

Valsmenn hafa sótt Shkelzen sem hefur verið ágætur í liði þeirra, en hann er eini leikmaðurinn sem þeir hafa sótt í þessum glugga og spurning er hvort þeir sæki fleiri.
Fyrir leik
Staða liðanna
Blikar hafa setið í 4. sæti frá 6. umferð og það mun ekki breytast í kvöld, þeir eru eiginlega bara í sínum eigin heimi þar, en það munar 7 stigum milli þeim og KR í 3. sæti og Keflavík sem situr í 5. sæti.

Valsmenn eru í 6. sæti eins og er og ef þeir sigra Blika í kvöld og Keflvíkingar tapa gegn Stjörnunni, þá eru þeir komnir upp í 5. sæti. Chris Brazell hefur verið í brasi í deildinni með Valsara, en hann hefur aðeins unnið einn deildarleik með þeim, og tapað öllum hinum. Þeir þurfa þennan sigur í kvöld
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins er Sigurður Hjörtur Þrastarson, en honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarsson. Fjórði dómari er Hreinn Magnússon og eftirlitsmaður er Oddur Helgi Guðmundsson!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta Deildin kallar!
Gott kvöld kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Eikarvellinum þar sem Breiðablik tekur á móti Val í 18. umferð Bestu deild karla!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.