Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Sól, vindur og frekar kalt.
Völsungur
Völsungur
3 - 2
HK
HK
Tómas Bjarni Baldursson 16'1 - 01 - 139' Arnþór Ari Atlason1 - 252' Tumi ÞorvarssonInigo Albizuri Arruti 59'2 - 2Elfar Árni Aðalsteinsson 62'3 - 2
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Leik lokið!
Þvílíkur sigur Völsungs!
Leik er lokið með frábærum endurkomusigri Völsungs! Enn og aftur er Elfar Árni hetjan. Þvílíkur leikmaður!
92. mín
Elfar Árni í stöngina!
Heimamenn hafa verið miklu nær að bæta við en HK að jafna síðustu mínútur. Nú slapp Elfar í gegn og neglir í stöngina
88. mín
HK-ingar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Róbert tekur spyrnuna en annars ágætt skot hans fer yfir.
Völsungur
85. mín
InnGestur Aron Sörensson
ÚtSergio Parla Garcia
82. mín
Dominik Radic skallar rétt yfir. HK-ingar halda áfram að pressa og Radic skallar rétt yfir eftir fyrirgjöf.
80. mín
Heimamenn hafa lagst mjög aftarlega á völlinn og gestirnir eru stanslaust með boltann. HK-ingar hafa þó ekki náð enn að skapa sér neitt eftir mark Elfars.
HK
79. mín
InnRóbert Quental Árnason
ÚtTumi Þorvarsson
HK
75. mín
Gult spjald

Tumi Þorvarsson

HK
72. mín
InnBreki Hólm Baldursson
ÚtÍvar Örn Jónsson
HK
72. mín
InnÞorvaldur Smári Jónsson
ÚtAtli Hrafn Andrason
Völsungur
72. mín
InnDagbjartur Búi Davíðsson
ÚtFernando Jimenez Arranz
Völsungur
72. mín
InnAndri V. Bergmann Steingrímsson
ÚtTómas Bjarni Baldursson
Völsungur
62. mín
Elfar kemur Völsungi yfir!

Elfar Árni Aðalsteinsson (stoðsending: Tómas Bjarni Baldursson)

Tómas Bjarni framlengir fyrirgjöf og skallar á Elfar Árna sem að sýnir mikinn styrk og heldur varnamanni frá sér og nær svo lúmsku skoti af stuttu fær sem að Óli í markinu ræður ekki við.
HK
60. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtKarl Ágúst Karlsson
Völsungur
59. mín
Heimamenn jafna!

Inigo Albizuri Arruti (stoðsending: Sergio Parla Garcia)

Völsungar fá hornspyrnu sem að Sergio Parla tekur. Albizuri nær að losa sig frá varnarmanni og er aleinn á fjærstönginni og skallar boltann inn.
Völsungur
55. mín
InnJón Helgi Brynjúlfsson
ÚtElmar Örn Guðmundsson
HK
52. mín
HK-ingar eru komnir yfir!

Tumi Þorvarsson

Tumi fær boltann úti vinstra megin og á fínan sprett að vítateig heimamanna, þar köttar hann til hægri og smyr boltinn í fjærstöngina og inn. Frábær afgreiðsla
47. mín
Karl Ágúst fær gult fyrir brot rétt utan teigs. Arnar Pálmi lætur vaða úr aukaspyrnunni en skot hans er framhjá.
HK
46. mín
Gult spjald

Karl Ágúst Karlsson

46. mín
Leikur hafinn
Aðalbjörn flautar seinni hálfleikinn í gang.
45. mín
Hálfleikur
Ágætlega fjörugum fyrri hálfleik er lokið. Heimamenn voru töluvert sterkari aðilinn framan af en gestirnir hafa unnið sig vel inní leikinn.
HK
39. mín
Gestirnir jafna!

Arnþór Ari Atlason (stoðsending: Atli Þór Gunnarsson)

Atli Þór á góðan sprett upp vinstri kantinn og á svo frábæra sendingu fyrir markið sem fer framhjá öllum varnarmönnum Völsungs á Arnþór sem þarf að gera lítið annað en að ýta boltanum yfir línuna.
36. mín
Aftur er Tumi að ógna. Nú á hann skalla að marki en Juan hendir sér fyrir og bjargar.
35. mín
Tumi er nálægt því að sleppa í gegn en Albizuri verst vel og þvingar hann í lélegt skot sem Victor ver vel.
Völsungur
30. mín
Gult spjald

Arnar Pálmi Kristjánsson

Arnar fær gult fyrir að stoppa skyndisókn gestana.
HK
25. mín
Gult spjald

Birgir Steinn Styrmisson

Birgir brýtur á Elmari rétt fyrir utan teig. Ekkert kemur þó úr aukaspyrnu heimamanna
22. mín
Heimamenn hóta því að bæta við. Skapaðist mikill darraðadans eftir hornspyrnu og varnarmaður HK fær boltann í hendina en ekkert dæmt. Held að þetta sé í fjórða sinn sem Völsungar telja sig eiga að fá víti.
19. mín
HK-ingar eru að vakna til lífsins. Aftur eftir hornspyrnu skallar Þorsteinn framhjá.
Völsungur
16. mín
Heimamenn leiða!

Tómas Bjarni Baldursson (stoðsending: Fernando Jimenez Arranz)

Ferndando og Tómas spila ágætlega saman úti vinstra megin. Tómas keyrir svo að teignum og á lúmskt skot niður í nærhornið sem að Ólafur í markinu sá ekki fyrr en boltinn lá í netinu. Verðskulduð forysta heimamanna.
12. mín
HK-ingar fá sína fyrstu hornspyrnu sem er fín, beint á pönnuna á Þorsteini sem skallar framhjá.
10. mín
Heimamenn hafa byrjað töluvert betur og nú fær Tómas Bjarni úrvalsfæri eftir sendingu Xabier. Skot Tómasar er hins vegar beint á Ólaf í markinu.
5. mín
Nú er Elfar togaður niður inní teig en aftur er ekkert dæmt. Elfar er brjálaður og hefur töluvert til síns máls.
3. mín
Fyrstu tilraun leiksins eiga heimamenn. Tómas Bjarni á góðan sprett upp hægri kantinn og á fína fyrirgjöf á Fernando sem skallar framhjá. Örskömmu síðar er Elfar Árni felldur inní teig en Aðalbjörn dæmir ekkert þrátt fyrir mikil mótmæli.
1. mín
Leikur hafinn
Aðalbjörn dómari flautar leikinn á.
Fyrir leik
Góðan dag og velkomin í beina textalýsingu frá GPG-vellinum á Húsavík þar sem heimamenn í Völsungi taka á móti HK í 17. umferð Lengjudeildar karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.