Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24396 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR08.05.2025, 09:54

ÍA fær unglingalandsliðsmann frá FH (Staðfest)

ÍA hefur fengið sóknarmanninn Sebastian Sigurðsson Bornachera í sínar raðir frá FH. Sebastian er fæddur árið 2009 og á að baki þrjá leiki fyrir U15 landsliðið. Hann var í mars valinn í æfingahóp U16 landsliðsins. Hann er uppalinn hjá Haukum en skipti yfir í FH í fyrra. Hann er núna kominn í ÍA.

FRÉTTIR08.05.2025, 09:30

Pétur Bjarna spilar í 3. deild í sumar (Staðfest)

Pétur Bjarnason hefur fengið félagaskipti í KFK og mun spila með liðinu á láni frá Vestra í sumar. Pétur er framherji sem fæddur er árið 1997 og skoraði þrjú mörk í Bestu deildinni á síðasta tímabili. Hann á að baki 272 meistaraflokksleiki og hefur í þeim skorað 92 mörk, þar af níu í efstu deild. Hann hefur til þessa aldrei spilað neðar en í C-deild.

FRÉTTIR05.05.2025, 10:36

Þorleifur Úlfars heim í Breiðablik (Staðfest)

Þorleifur Úlfarsson hefur gengið frá samningi við uppeldisfélagið sitt Breiðablik og er kominn með leikheimild fyrir félagið eftir að hafa undanfarin ár verið í Bandaríkjunum og svo hjá Debrecen í Ungverjalandi. Þorleifur er 24 ára sóknarmaður sem glímdi við erfið meiðsli hjá Debrecen eftir að hann samdi við félagið snemma árs 2024. Hann er enn að glíma við meiðsli, fór í speglun á hné nýlega en vonandi styttist í að kappinn geti farið að spila.

FRÉTTIR05.05.2025, 09:13

Trent Alexander-Arnold kveður Liverpool (Staðfest)

Trent Alexander-Arnold hefur staðfest að hann muni yfirgefa Liverpool í sumar. Enski landsliðsmaðurinn er á leið til Real Madrid á Spáni. <i>„Eftir 20 ár hjá Liverpool FC er nú tími til að staðfesta að ég er á förum eftir tímabilið. Þetta er klárlega erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á lífsleiðinni,"</i> segir Trent í myndbandstilkynningu.

FRÉTTIR03.05.2025, 08:00

Eric Dier yfirgefur Bayern (Staðfest)

Bayern Munchen hefur staðfest að Eric Dier muni yfirgefa félagið í sumar þar sem hann ákvað að framlengja ekki samning sinn við félagið. Hann hefur samþykkt þriggja ára samning við Mónakó og mun ganga til liðs við félagið 1. júlí þegar samningur hans við Bayern rennur út.

FRÉTTIR03.05.2025, 06:30

KFG krækti í Kára Vilberg frá Víkingi (Staðfest)

KFG gerði vel undir félagaskiptagluggans, fékk þrjá leikmenn frá venslafélaginu Stjörnunni og þá kom Kári Vilberg Atlason frá Víkingi Reykjavík. Kári Vilberg er fæddur árið 2004 og er skapanadi sóknarsinnaður miðjumaður. Hann er uppalinn hjá Breiðabliki, var í úrtakshópum fyrir U16 á sínum tíma og fór á reynslu til FC Nordsjælland.

FRÉTTIR01.05.2025, 07:30

Toni Tipuric spilar með Sindra í sumar (Staðfest)

Varnarmaðurinn Toni Tipuric, sem leikur ýmist sem varnartengiliður eða miðvörður, er búinn að skrifa undir samning við Sindra sem leikur í 3. deild karla. Hann gæti reynst gífurlega dýrmætur liðsstyrkur þar á bæ eftir að Sindri rétt forðaði sér frá falli úr deildinni í fyrra.

FRÉTTIR01.05.2025, 06:00

Guðjón snýr aftur til Grindavíkur (Staðfest)

Grindavík er að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild karla og er búið að næla sér í Guðjón Þorsteinsson frá stórliði Víkings í Reykjavík. Guðjón er fæddur 2006 og uppalinn hjá Grindavík. Hann er því að snúa aftur á heimaslóðir. Guðjón hefur ekki spilað keppnisleik fyrir meistaraflokk Víkings en hann lék tvo leiki með Grindavík í Lengjubikarnum sumarið 2022 áður en hann flutti til Reykjavíkur.

FRÉTTIR30.04.2025, 13:12

Benjamin Stokke í Aftureldingu (Staðfest)

Norski framherjinn Benjamin Stokke er genginn í raðir Aftureldingar, hefur skrifað undir samning sem gildir út tímabilið. Afturelding náði að ganga frá öllum pappírum fyrir lok gluggans í gærkvöldi og getur Stokke spilað með liðinu í næsta deildarleik sem verður gegn Stjörnunni á heimavelli á mánudag. Stokke er 34 ára og kemur frá uppeldisfélagi sínu, Eik, sem er í norsku C-deildinni. Hann lék með Breiðabliki í fyrra og varð Íslandsmeistari með liðinu. Tímabilið þar á undan var hann markakóngur norsku B-deildarinnar sem leikmaður Kristiansund. Aturelding er með fjögur stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar í Bestu deildinni.

FRÉTTIR30.04.2025, 09:00

Eyþór Orri og þrír aðrir í Þrótt V. (Staðfest)

Þróttur Vogum bættu við sig fjórum leikmönnum fyrir gluggalok í gær en þeir Eyþór Orri Ómarsson, Franz Bergmann Heimisson, Eiður Baldvin Baldvinsson og Birgir Halldórsson eru allir búnir að skrifa undir hjá félaginu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.