Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24424 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.04.2024, 13:43

Beitir heim í HK (Staðfest)

Markvörðurinn Beitir Ólafsson hefur fengið félagaskipti frá KR í uppeldisfélagið sitt HK. Beitir er 37 ára og lék einn leik með Gróttu í fyrra. Hann hefur fyrir utan það verið hjá KR frá sumrinu 2017 og varð Íslandsmeistari með liðinu 2019.

FRÉTTIR24.04.2024, 12:23

Óli Kalli skiptir til Vals (Staðfest)

Ólafur Karl Finsen hefur fengið félagaskipti í Val og fær á morgun leikheimild með liðinu. Hann skiptir frá Fylki þar sem hann lék í fyrra.

FRÉTTIR24.04.2024, 11:44

HK kallar í markavél frá Ými (Staðfest)

HK hefur fengið félagaskipti fyrir Eið Gauta Sæbjörnsson frá venslafélaginu Ými. Eiður er 24 ára framherji sem raðað hefur inn mörkum fyrir Ými undanfarin ár. Ýmir hefur leikið í 3. og 4. deild síðustu ár og í 60 deildarleikjm fyrir félagið hefur hann skorað 71 mark. Í vetur skoraði hann svoa 10 mörk í 6 leikjum með Ými í C-deild Lengjubikarsins en liðið er komið í úrslitaleik keppninnar.

FRÉTTIR24.04.2024, 11:25

Sigurbergur Áki til Fylkis (Staðfest)

Sigurbergur Áki Jörundsson er kominn í Fylki frá Stjörnunni og skrifar undir samning út tímabilið 2027. Beggi, eins og hann er oftast kallaður, var ekki í hópnum í fyrstu þremur leikjum Stjörnunnar í Bestu deildinni. Hann er tvítugur og á að baki 16 leiki fyrir yngri landsliðin, þar af 13 fyrir U19.

FRÉTTIR24.04.2024, 09:46

Spænskur vængmaður til Dalvíkur (Staðfest)

Dalvík/Reynir tilkynnti í dag um komu spænsks vængmanns til félagsins. Sá heitir Amin Guerrero og spilar með D/R út komandi tímabil. <i>&bdquo;Amin er 23 ára, snöggur og leikinn leikmaður sem getur leyst nokkrar stöður framarlega á vellinum. Hann kemur til liðs við okkur frá El Palo á Spáni,"</I> segir í tilkynningu D/R.

FRÉTTIR24.04.2024, 09:29

Þórir Guðjóns í Þrótt (Staðfest)

Þórir Guðjónsson er genginn í raðir Þróttar og mun spila með liðinu í sumar. Þórir er 33 ára framherji sem leikið hefur með Fram undanfarin ár en rann út á samningi síðasta haust.

FRÉTTIR23.04.2024, 14:40

Þórður Ingason í KFA (Staðfest)

Markvörðurinn Þórður Ingason er genginn í raðir KFA, er kominn með félagaskipti til félagsins. Þórður lagði hanskana á hilluna í vetur eftir fimm ár með Víkingi þar sem hann varð fjórum sinnum bikarmeistari og tvisvar sinnum Íslandsmeistari.

FRÉTTIR23.04.2024, 13:21

Gary Martin í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Enski sóknarmaðurinn Gary Martin hefur verið lánaður frá Selfossi í Víking Ólafsvík sem leikur í 2. deild. Fótbolti.net sagði frá því fyrr í dag að Gary væri á leiðinni á Ólafsvík og það hefur núna verið staðfest.

FRÉTTIR22.04.2024, 17:00

Ómar Castaldo til Ólafsvíkur (Staðfest)

Ómar Castaldo Einarsson hefur fengið félagaskipti til Víkings Ólafsvíkur og mun spila með liðinu í 2. deild í sumar. Ómar er 23 ára markvörður sem var í leikmannahópi Þórs í fyrra og lék tvo leiki í bikarnum. Hann gerði tveggja ára samning við Þór fyrir síðasta tímabil en í vetur varð ljóst að hann yrði ekki áfram.

FRÉTTIR22.04.2024, 16:30

Cannavaro orðinn stjóri Udinese (Staðfest)

Ítalska félagið Udinese hefur ráðið Fabio Cannavaro sem nýjan stjóra út tímabilið. Cannavaro varð heimsmeistari með Ítalíu 2006 og tekur við af Gabriele Cioffi sem var látinn fara eftir fjóra tapleiki í fimm leikjum. Eftir 1-0 tap gegn Verona er Udinese er í sautjánda sæti en liðið er aðeins markatölunni frá fallsvæðinu.

FRÉTTIR22.04.2024, 11:43

Grindavík fær portúgalskan bakvörð (Staðfest) - Níundi erlendi leikmaðurinn

Grindavík hefur fengið portúgalskan vinstri bakvörð í sínar raðir fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Nuno Jorge Nobre Barbosa Malheiro, eða einfaldlega Nuno Malheiro, er kominn með leikheimild með Grindavík og getur spilað þegar Grindavík mætir ÍBV í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á fimmtudaginn.

FRÉTTIR22.04.2024, 09:36

FH fær Helenu frá Val (Staðfest)

Helena Ósk Hálfdánardóttir er mætt í FH á láni frá Val og er komin með leikheimild fyrir leik FH gegn Tindastóli. Sá leikur hefst klukkan 17:00 á Sauðárkróksvelli í dag. Helena var ónotaður varamaður hjá Val í gær þegar meistararnir lögðu Þór/KA að velli í opnunarleik Bestu deildarinnar.

FRÉTTIR19.04.2024, 21:40

Rúnar Már í ÍA (Staðfest)

Rúnar Már Sigurjónsson er genginn til liðs við ÍA en þetta var staðfest á herrakvöldi félagsins sem nú stendur yfir. Rúnar mætti upp á svið. Þessi gríðarlega reynslumikli miðjumaður, fyrrum landsliðsmaður og atvinnumaður til fjölda ára, hefur skrifað undir samning við Skagamenn til loka tímabilsins 2026 en hann er 33 ára. Rúnar Már hefur leikið 32 A-landsleiki og skoraði í þeim 2 mörk. Hann spilaði sem atvinnumaður í Svíþjóð, Sviss, Rúmeníu og Kasakstan. Spilaði hann 271 leik og skoraði í þeim 60 mörk og gaf 42 stoðsendingar. Á þessum tíma vann Rúnar Már deildina í Rúmeníu tvisvar sinnum, deildina í Kasakstan einu sinni og varð meistari meistaranna bæði í Rúmeníu og Kasakstan. Hann spilaði í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar og eru Evrópuleikirnir 29, 9 mörk og 5 stoðsendingar. <i>„Rúnar Már mun koma til með að styrkja lið ÍA verulega og er mikil tilhlökkun að fá að fylgjast með honum næstu ár,"</i> segir í tilkynningu ÍA. ÍA er með þrjú stig eftir tvær umferðir í Bestu deildinni en liðið mætir Fylki í Akraneshöllinni á sunnudag.

FRÉTTIR19.04.2024, 18:31

Jason Wilcox ráðinn til Man Utd (Staðfest)

Manchester United hefur staðfest ráðningu á Jason Wilcox sem nýjum tæknistjóra félagsins, þar sem hann mun starfa samhliða nýlega ráðnum framkvæmdastjóra Omar Berrada og væntanlegum yfirmanni fótboltamála Dan Ashworth, sem er samningsbundinn Newcastle United sem stendur.

FRÉTTIR19.04.2024, 12:43

Pétur Theódór heim í Gróttu (Staðfest)

Grótta tilkynnti rétt í þessu að Pétur Theódór Árnason væri genginn til liðs við félagið frá Breiðabliki. <b>Úr tilkynningu Gróttu:</b> Eins og kunnugt er var Pétur keyptur til Breiðabliks frá Gróttu eftir tímabilið 2021 en varð fyrir því óláni að slíta krossband þá um haustið. Pétur lék því aðeins einn leik þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari árið 2022 og spilaði svo með Gróttu á láni síðasta sumar. Liðþófameiðsli urðu til þess að Pétur spilaði ekkert seinni hluta tímabilsins í fyrra en fyrstu æfingarnar með Gróttu hafa gengið vel og það verður spenanndi að sjá hvort að framherjinn knái nái að láta ljós sitt skína í sumar. Pétur var samningsbundinn Breiðabliki út komandi tímabil en ákvað fyrr í vetur að rifta samningi sínum við félagið.

FRÉTTIR19.04.2024, 12:30

Keflavík fær markaskorara frá Augnabliki (Staðfest)

Augnablik tilkynnti í dag að Rúnar Ingi Eysteinsson væri búinn að kveðja félagið og væri genginn í raðir Keflavíkur. <i>„Það er komið að tímamótum hjá einum okkar helsta markaskorara, Rúnari Inga, en hann hefur skrifað undir samning við Suðurnesjarisann Keflavík,"</I> segir í byrjun tilkynningarinnar sem má lesa í heild sinni hér neðst.

FRÉTTIR19.04.2024, 11:38

Bandarískur bakvörður til Vals (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við bandaríska bakvörðinn Camryn Paige Hartmann um að spila með liðinu tímabilið 2024. Hartmann er 24 ára vinstri bakvörður og kemur hún frá Cleveland. Í tilkynningu Vals segir að hún eigi nokkuð farsælan feril úr háskólaboltanum að baki.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.