Stefan Ljubicic til Skövde (Staðfest)
Sóknarmaðurinn Stefan Alexander Ljubicic er genginn í raðir sænska félagsins Skövde frá Keflavík en þetta kemur fram í tilkynningu frá Keflvíkingum í dag.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25146 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Sóknarmaðurinn Stefan Alexander Ljubicic er genginn í raðir sænska félagsins Skövde frá Keflavík en þetta kemur fram í tilkynningu frá Keflvíkingum í dag.
John van't Schip, þjálfari Ajax í Hollandi, hættir með liðið eftir þetta tímabil en þetta staðfesti hann í dag.
Hildur Lilja Ágústsdóttir hefur samið um að leika áfram með HK í Lengjudeildinni en hún kemur til félagsins frá nágrönnum þeirra í Breiðabliki.
Jagoba Arrasate, þjálfari Osasuna á Spáni, staðfesti í dag að þetta yrði hans síðasta tímabil með liðið.
Varnarmaðurinn Rasmus Christiansen hefur gengið til liðs við ÍBV á nýjan leik og skrifaði undir samning við knattspyrnudeild félagsins til loka þessa tímabils. Þessi 34 ára gamli miðvörður kom einnig til liðsins árið 2010, þá 20 ára gamall.
Búlgarski varnarmaðurinn Slavi Kosov hefur skrifað undir samning við Njarðvík sem gildir út keppnistímabilið 2024.
Þór/KA hefur samið við bandaríska markvörðinn Shelby Money um að ganga í raðir félagsins. Unnið er að frágangi og umsóknum varðandi félagaskipti og leikheimild og vonast er til að hún verði klár í leikmannahópinn fyrir fyrsta leik í Bestu deildinni þann 21. apríl.
Cristofer Rolin er genginn til liðs við Þrótt R. frá Ægi og er þegar kominn með leikheimild.
Njarðvík hefur gengið frá viðræðum við króatíska framherjann Dominik Radic en hann skrifaði í dag undir samning við félagið til 2025.
Fréttir um Gylfa Þór Sigurðsson hafa verið mikið lesnar á undanförnum vikum og voru það áfram í síðustu viku. Fréttir um íslenska landsliðið nutu einnig vinsælda en strákarnir okkar spila á morgun úrslitaleik við Úkraínu um sæti á EM. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 mest lesnu fréttir síðustu viku.
Eyjamaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson er genginn í raðir Vestra en hann fékk félagaskipti sín í gegn í dag.
<p>Abdeen Temitope Abdul er genginn til liðs við Dalvík/Reyni og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.</p>
Filip Valencic hefur yfirgefið herbúðir ÍBV og er hann búinn að semja við Olimpia Grudziadz í C-deild í Póllandi. Liðið er sem stendur á botninum í deildinni. Valencic er 32 ára gamall Slóveni, skapandi miðjumaður sem fenginn var til Vestmannaeyja fyrir síðasta tímabil til að fylla í skarð Telmo Castanheira.
Danska úrvalsdeildarfélagið Midtjylland hefur keypt hinn efnilega Egil Orra Arnarsson frá Þór á Akureyri. Egill varð 16 ára gamall í gær og skrifaði hann þá undir þriggja ára samning við Midtjylland. Egill Orri mun formlega ganga í raðir Midtjylland þann 1. júlí næstkomandi og byrjar hann í unglingaliðum félagsins.
Kantmaðurinn Yannie Bolasie hefur fengið félagaskipti yfir til Criciúma í Brasilíu á frjálsri sölu. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 34 ára gamli Bolasie spilar fótbolta utan Evrópu.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir er gengin í raðir FH en Fótbolti.net greindi fyrst frá því að hún væri að ganga í raðir félagsins fyrr í þessari viku. Fleiri félög á Íslandi höfðu áhuga á henni en hún valdi að fara í FH. Andrea Rán hefur skrifað undir samning við Fimleikafélagið sem gildir út komandi keppnistímabil.
Liverpool staðfesti nú í hádeginu að Richard Hughes hafi verið ráðinn til félagsins sem nýr íþróttastjóri og taki við nýja starfinu í lok þessa tímabils, 1. júní Hughes sem er 44 ára gamall kemur til félagsins frá Bournemouth þar sem hann var í samskonar stöðu. Hann kemur í kjölfar þess að Michael Edwards var ráðinn til félagsins sem yfirmaður fótboltamála á dögunum en saman voru þeir hjá Portsmouth þegar Hughes var þar leikmaður í gamla daga.
<p>Gary Rowett hefur verið ráðinn bráðabirgðastjóri Birmingham. Hann tekur við af Tony Mowbray sem er í veikindaleyfi.</p>
<p>Fylkir og Gunnlaugur Fannar Guðmundsson hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins.</p>
Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli er að styrkja sig fyrir komandi átök í 4. deildinni og hefur bætt nokkrum öflugum leikmönnum við sig sem búa yfir góðri reynslu.