Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. mars 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rowett tekur tímabundið við Birmingham (Staðfest)
Gary Rowett
Gary Rowett
Mynd: Getty Images

Gary Rowett hefur verið ráðinn bráðabirgðastjóri Birmingham. Hann tekur við af Tony Mowbray sem er í veikindaleyfi.


Rowett mun stýra liðinu í átta síðustu leikjum liðsins í Championship deildinni en Mowbray mun snúa aftur fyrir undirbúningstímabilið fyrir næstu leiktíð.

Félagið tók ákvörðunina að ráða Rowett í samráði við Mowbray sem taldi hann rétta manninn til að klára tímabilið með liðinu.

Birmingham er í 21. sæti Championship deildarinnar og hefur aðeins nælt í eitt stig í síðustu sex leikjum.

Rowett stýrði Millwall síðast frá 2019 áður en hann yfirgaf félagið í október i fyrra. Hann lék með Birmingham á sínum leikmannaferli og stýrði liðinu frá 2014-2016.


Athugasemdir
banner
banner
banner