fös 05.apr 2024 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net - 3. sæti: Stjarnan
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Stjarnan muni enda í þriðja sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Stjarnan endaði í þriðja sæti á síðustu leiktíð og er því spáð að liðið endi aftur þar.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. Stjarnan, 111 stig
Breiðablik, 109 stig
5. KR, 104 stig
6. FH, 81 stig
7. KA, 66 stig
8. Fram, 60 stig
9. ÍA, 59 stig
10. Vestri, 34 stig
11. Fylkir, 24 stig
12. HK, 14 stig
Um liðið: Sumarið í fyrra byrjaði alls ekki vel fyrir Stjörnuna og urðu þjálfaraskipti snemma. Fljótlega fann liðið samt sem áður taktinn og það fór að ganga betur. Undir lok sumarsins leit Stjarnan rosalega vel út og varð heitasta lið deildarinnar. Í liði Stjörnunnar eru margir ungir leikmenn sem hafa spilað lengi saman og það sést hvað tengingin er sterk. Það verður fróðlegt að sjá hvort Garðabæjarfélagið muni taka næsta skref í sumar.
Þjálfarinn: Jökull Elísabetarson tók við sem aðalþjálfari Stjörnunnar á síðustu leiktíð eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Ágústar Gylfasonar þar áður. Jökull er í sínu öðru starfi sem aðalþjálfari en hann gerði áður fyrr fína hluti með Augnablik. Hann er afar efnilegur og spennandi þjálfari sem verður áhugavert að fylgjast með í framtíðinni. Leikmenn Stjörnunnar eru afar hrifnir af Jökli og þeirri vinnu sem hann hefur verið að vinna.
Fótbolti.net fær sérfræðingana Einar Guðnason og Harald Árna Hróðmarsson til að rýna í styrkleika, veikleika og annað hjá liðunum sem spila í Bestu deildinni í sumar. Einar, sem er fyrrum aðstoðarþjálfari Víkinga, fer yfir það helsta hjá Stjörnunni.
Styrkleikar: Stjarnan munu mæta óhræddir til leiks gegn öllum mótherjum og spila sinn fótbolta. Það getur verið styrkleiki að treysta á sjálfan sig og kerfið. Það mun líka vinna með þeim hversu óútreiknanlegir þeir verða í sumar.
Veikleikar: Veikleikarnir gætu verið þeir sömu og styrkleikarnir. Þeir bera ekki virðingu fyrir neinu ekki einu sinni mótunum sem þeir taka þátt í. Mun það koma í bakið á þeim? Eins getur of mikil tilraunamennska mögulega hrært vitlaust í hausnum á ungum mönnum. Hvernig höndla þeir að vera “stærra liðið” í leikjum?
Lykilmenn: Emil Atlason er mikill íþróttamaður sem þarf að vera heill í sumar. Ef Stjarnan ætlar að skora mörk í sumar þurfa þeir að ná að kveikja á honum. Róbert Frosti Þorkelsson er lipur og áræðinn kantmaður sem verður lykilmaður Stjörnunnar þangað til hann verður seldur út. Það kæmi mér á óvart ef það verður ekki í sumar. Markvörðurinn Árni Snær Ólafsson hentar frábærlega í fótboltann sem Stjarnan spilar. Frábær sendingamaður hvort sem um er að ræða stuttar eða langar sendingar. Svo er hann líka fínn á milli stanganna sem skemmir ekki fyrir þar sem hann er jú markvörður.
Leikmaður sem á að fylgjast með: Ég hef lengi haft mikið álit á Adolf Daða Birgissyni. Hann er með markanef og góðar tímasetningar á hlaupum í teignum. Hann mun springa út fyrir alvöru í sumar.
Komnir:
Örvar Eggertsson frá HK
Guðmundur Baldvin Nökkvason frá Mjällby á láni
Óli Valur Ómarsson frá Sirius á láni
Mathias Rosenörn frá Keflavík
Þorlákur Breki Baxter frá Lecce
Daníel Finns Matthíasson frá Leikni (var á láni)
Sigurbergur Áki Jörundsson frá HK (var á láni)
Farnir:
Eggert Aron Guðmundsson til Elfsborg
Joey Gibbs til Ástralíu
Björn Berg Bryde hættur og kominn í þjálfarateymið
Haraldur Björnsson
Allan Purisevic í FH
Gunnar Orri Olsen til FCK (1. júlí)
Henrik Máni B. Hilmarsson til ÍBV á láni
Sigurður Gunnar Jónsson til Leiknis á láni
Tómas Óli Kristjánsson til AGF
Dómur Einars fyrir gluggann: Fá 7. Þrátt fyrir að hafa misst Eggert sem var þeirra besta maður í fyrra tel ég að hópurinn sé breiðari en í fyrra.
Leikmannalisti:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
13. Matthias Rosenörn (m)
2. Heiðar Ægisson
3. Tristan Freyr Ingólfsson
4. Óli Valur Ómarsson
5. Guðmundur Kristjánsson
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Adolf Daði Birgisson
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
17. Andri Adolphsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
20. Sigurbergur Áki Jörundsson
22. Emil Atlason
27. Dagur Orri Garðarsson
28. Baldur Logi Guðlaugsson
29. Adolf Daði Birgisson
30. Kjartan Már Kjartansson
32. Örvar Logi Örvarsson
35. Helgi Fróði Ingason
80. Róbert Frosti Þorkelsson
Fyrstu fimm leikir Stjörnunnar:
6. apríl, Víkingur R. - Stjarnan (Víkingsvöllur)
12. apríl, Stjarnan - KR (Samsungvöllurinn)
19. apríl, Stjarnan - Valur (Samsungvöllurinn)
29. apríl, Fylkir - Stjarnan (Würth völlurinn)
5. maí, Stjarnan - ÍA (Samsungvöllurinn)
Í besta og versta falli: Í Besta falli ná Stjörnumenn að hanga í bestu liðunum en enda í þriðja sæti. Ef allt fer í bál og brand og þeir missa tökin gætu þeir endað í baráttu um Forsetabikarinn.
Spámennirnir: Aksentije Milisic, Anton Freyr Jónsson, Arnar Laufdal, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.