08.10.26 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emelía um bróður sinn: Fyllist stolti í hvert einasta skipti
Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Emelía á landsliðsæfingu.

Mynd: KSÍ

Orri er landsliðsfyrirliði Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Emelía á landsliðsæfingu.

Mynd: KSÍ

Emelía Óskarsdóttir er nýliði í íslenska landsliðshópnum sem mætir Króatíu í umspili fyrir HM á morgun.
Emelía er með sterk fótboltagen. Faðir hennar er Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, og bróðir hennar er landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson.

TENGT EFNI
Frá árs fjarveru í íslenska landsliðið - „Tíminn líður ekkert eðlilega hægt“
Emelía var spurð út í Orra í viðtali við Fótbolta.net í dag, hvernig væri að sjá hann sem fyrirliða landsliðsins.
„Ég fyllist stolti í hvert skipti," sagði Emelía.
„Það er geggjað að hann sé fyrirliði, ógeðslega flottur. Hann var geggjaður í landsliðsglugganum núna, spilaði mikið og skoraði mikið."
„Ég sagði við hann fyrir Búlgaríuleikinn að hann ætti að skora þrennu og ég vil meina að það hafi verið viljandi að síðasta markið hafi ekki komið. Ég má ekki hafa of mikið rétt fyrir mér. Nei, ég segi svona. Hann er geggjaður og frábær fyrirmynd. Það er geggjað að læra af honum," sagði Emelía en Orri skoraði tvö gegn Búlgaríu en klikkaði á vítaspyrnu.
Eruð þið líkir leikmenn að einhverju leyti?
„Nei," sagði Emelía og hló. „Ég væri alveg til í að vera góð í skallaeinvígum og góður 'target striker'. Við erum bæði með smá hraða. Við erum ekkert sérstaklega lík, kannski smá."