Fotbolti.net
29.11.26 - 11:39
Brynjar Ingi Erluson

Ferdinand með skýr skilaboð til Pochettino

Ferdinand vill sjá Lacey byrja

Ferdinand vill sjá Lacey byrja

Canon

Mynd: EPA

Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að Mauricio Pochettino verði að gefa einum leikmanni sæti í byrjunarliðinu í næstu leikjum.
Man Utd féll síðast þegar þetta gerðist
TENGT EFNI

Man Utd féll síðast þegar þetta gerðist

United fékk enn eina útreiðina á tímabilinu þegar liðið steinlá 4-0 fyrir Brentford í gær.

Ferdinand sá fátt jákvætt við frammistöðu sinna gömlu félaga, en vakti þó athygli á innkomu eins leikmanns sem hann segir að verði að fá sæti í byrjunarliðinu.

Þar er um að ræða hinn 19 ára gamla Shea Lacey, sem margir stuðningsmenn United hafa kallað eftir að sjá meira af. Ferdinand telur að nú sé rétti tíminn fyrir Pochettino að gefa honum tækifærið frá fyrstu mínútu.

„Ég held að enginn geti tekið neitt jákvætt úr þessum leik, nema kannski Shea Lacey. Pochettino verður að byrja með Lacey núna. Hann er sá eini sem ber ekki örin eftir það sem þetta lið hefur gengið í gegnum. Hann er ekki með nein stríðsör og hefur ekki upplifað alla þessa niðurlægingu sem liðið hefur orðið fyrir gegn nánast öllum andstæðingum sínum í deildinni.“

„Lacey kemur inn á og maður sér strax hvernig hann ber sig. Hann er þarna og hugsar: ‚Hey, ég er laus. Gefðu mér boltann og ég skal reyna að gera eitthvað hérna.‘ Hann verður að byrja. Hann er eini leikmaðurinn í þessu liði sem ég horfi á og hugsa að verði að vera í byrjunarliðinu, því allir hinir bera stríðsör og sár. Mjög djúp sár,“
sagði Ferdinand.

Ferdinand telur jafnframt að sjálfstraustið sé algjörlega farið úr leikmönnum United og að liðið skorti bæði hugmyndaflug og getu til að halda uppi mikilli ákefð í leikjum.

„Þessir strákar hafa ekkert sjálfstraust og ráða ekki við sveiflurnar sem verða í leikjum. Þegar maður horfir á liðið í heild sinni virðist það einfaldlega skorta sjálfstraust og hugmyndaflug. Leikmennirnir hafa fengið algjöra útreið, hver og einn.“

„Þegar United er með boltann virðist hvergi vera pláss til að spila honum í gegnum vörn andstæðinganna. Það lítur út fyrir að vera ótrúlega erfitt fyrir okkur að finna svæði. Þegar við vinnum boltann fyrir utan eigin vítateig eru andstæðingarnir strax mættir í pressu og loka öllum sendingaleiðum.“

„En þegar við snúum þessu við og önnur lið eru með boltann við okkar vítateig geta þau keyrt beint á varnarlínuna. Þá hugsa ég bara: Hvað er eiginlega í gangi? Við virðumst ekki geta spilað á miklum hraða og af mikilli ákefð nógu lengi. Það er eins og við séum alltaf búnir á því. Okkur vantar einfaldlega leikmenn með þá líkamlegu getu sem þarf til að spila svona fótbolta, og það sést um allan völl,“
sagði Ferdinand í lokin.
Ferdinand segir leikmenn United með ekkert sjálfstraust

Ferdinand segir leikmenn United með ekkert sjálfstraust

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Brentford12+1320
6Leeds12+820
7Bournemouth11+418
8Chelsea12-116
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Aston Villa12-315
12Hull City11+214
13Newcastle11-313
14Nott. Forest12-512
15Ipswich Town12-712
16Coventry12-1112
17Fulham11-211
18Sunderland11-99
19Man Utd12-138
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.