Fotbolti.net
16.11.26 - 11:40
Elvar Geir Magnússon

Forseti franska sambandsins gæti óvænt farið á móti Infantino

Philippe Diallo.

Philippe Diallo.

Canon

Mynd: EPA

Philippe Diallo, forseti franska fótboltasambandsins, gæti óvænt staðfest framboð sitt til forseta FIFA seinna í dag.

UEFA hefur verið að leita að frambjóðanda sem gæti keppt um forsetastólinn við Gianni Infantino en frestur til að skila inn framboði rennur út á morgun.

Diallo gagnrýndi Infantino harðlega í september og sagði að hann hefði „alvarlega skaðað ímynd og einingu fótboltans“.

„Stjórnunarhættir FIFA standast ekki þá staðla sem fótboltinn stendur fyrir," sagði Diallo. Hann segir að endurskoða allt kerfi FIFA og vinna að umbótum, til þess þurfi að ræða við álfusambönd, aðildarlönd, leikmenn, stuðningsmenn og sérfræðinga í stjórnarháttum.

„Það þarf að vinna að víðtækri umbreytingu á stjórnarháttum FIFA, með það að markmiði að endurvekja traust, auka gagnsæi og tryggja sjálfstæði og góða hegðun stjórnenda FIFA."
Frakkland vill Infantino burt og umbreytingu á FIFA
TENGT EFNI

Frakkland vill Infantino burt og umbreytingu á FIFA

Framboð frá Diallo gæti fengið Kozo Tashima, heiðursforseta japanska sambandsins, til að hætta við sitt framboð. Diallo er talinn eiga meiri möguleika gegn Infantino.
Gianni Infantino og Diallo.

Gianni Infantino og Diallo.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.