Fotbolti.net
24.09.26 - 12:00
Fótbolti.net

Lið ársins og bestu menn í 3. deildinni 2026

KH fór óvænt upp um deild sem nýliðar.

KH fór óvænt upp um deild sem nýliðar.

Canon

Mynd: KH/Jói Skúli X

Tímabilinu í 3. deild karla lauk á dögunum og voru það Víðismenn sem hömpuðu titlinum. KH fylgir þeim óvænt upp um deild en þeir voru nýliðar í 3. deildinni og enduðu í 2. sæti.

Fótbolti.net fékk umsjónarmenn hlaðvarpsþáttarins Harksins til að velja úrvalslið tímabilsins. Hér að neðan má líta það augum, einnig er opinberað val á þjálfara og leikmanni ársins ásamt efnilegasta leikmanninum.
Lið ársins:
Jón Orri Sigurgeirsson (m) - Víðir Garði

Bjarmi Kristinsson - KH
Marc Mcausland - Víðir Garði
Cameron Michael Briggs - Víðir Garði

Haukur Ásberg Hilmarsson - KH
David Bercedo - Tindastóll
Matheus Gotler- Tindastóll
Ingólfur Sigurðsson - Reynir S.
Sigfús Kjalar Árnason - KH

Ísak John Ævarsson - Víðir Garði
Jordan Smylie - Reynir S.

Varamenn:
Filip Kramarz (m) - Höttur
Alexander Lúðvígsson - KH
Nadir Moukhliss - Víðir Garði
Dennis Moreno - Höttur
Luis Cabrera - KH
Jóhann Frans Ólason - Sindri
Jhoel Sarraude - KF

Þjálfari ársins: Hallgrímur Dan Daníelsson (KH)
Hallgrímur Dan stýrði KH upp úr 4. deild á síðustu leiktíð ásamt Gunnari Einarssyni og kom KH því sem nýliðar inn í mótið. Liðið kom flestum á óvart, endaði í öðru sæti og tryggði sér þar með sæti í 2. deild að ári.

Efnilegastur: Jóhann Frans Ólason (Sindri)
Jóhann kom til Sindra á láni frá Selfossi þegar tímabilið var hafið. Hann er uppalinn á Höfn en tengingin við Selfoss er sterk þar sem faðir hans, Óli Stefán Flóventsson, er þjálfari. Hann skoraði sjö mörk í 19 leikjum með liðinu og lék stórt hlutverk í því að Sindri endaði í 7. sæti deildarinnar.

Bestur: Ísak John Hill (Víðir)
Ísak fór með himinskautum í Garði í sumar og skoraði hann fimmtán mörk í 20 leikjum með liðinu. Burðarás í besta liði mótsins og er vel að þessu kominn.

Eldri lið ársins í 3. deild
Lið ársins í 3. deild 2025
Lið ársins í 3. deild 2024
Lið ársins í 3. deild 2023
Lið ársins í 3. deild 2022
Lið ársins í 3. deild 2021
Lið ársins í 3. deild 2020
Víðir vann deildina.

Víðir vann deildina.

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Lék með Sindra á láni frá Selfossi.

Lék með Sindra á láni frá Selfossi.

Canon

Mynd: Harkið

Sá besti.

Sá besti.

Canon

Mynd: Harkið

Harkið - Uppgjörsþáttur úr 3 deild

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.