Magnús Már: Segir sig sjálft á hverjum pressan er
„Sama hvert maður kemur í Mosfellsbæ er verið að tala um þennan leik. Við elskum úrslitaleiki og erum að koma hingað í þriðja sinn í fjórum árum í úrslitaleik. Við ætlum að skrifa annan kafla í fótboltasögu Mosó á föstudaginn," segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.
Mosfellingar mæta Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á föstudagskvöld. Magnús segir að reynsla Aftureldingar, sem vann Lengjudeildina, í því að spila stóra leiki komi liðinu og öllum í kringum það til góða í leinum.