Fotbolti.net
07.09.26 - 23:05
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Einar Guðna: Það er allt búið að vera á móti okkur

Auglýsing
Einar Guðnason, þjálfari Víkings

Einar Guðnason, þjálfari Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

„Bara gríðarlega sáttur, sigur sem við áttum skilið fannst mér,“ sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkinga, eftir gríðarlega mikilvægan 1-2 sigur á Stjörnunni í Miðgarði í kvöld. 

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 Víkingur R.

„Leikurinn mjög jafn úti á velli og hvorugt liðið náði einhverri stjórn fannst mér. Ekki kannski fallegasti fótbolti í heimi en við fengum færin og við fengum nokkur færi fyrir utan þessi tvö sem við skoruðum úr þannig svona heilt yfir held ég að þetta sé sanngjarnt,“ hélt hann svo áfram. 

Eftir að hafa prófað ýmislegt framan af þegar kemur að liðsuppstillingu og leikkerfum virðist Einar hafa fundið liðið sitt en sömu ellefu leikmenn hafa byrjað síðustu þrjá leiki. Er það ákveðinn léttir að hafa fundið formúlu sem virkar?

„Já það er líka annað sem að við vorum að, það er ekki bara einhver taktík eða liðsval sem hefur þessi áhrif. Það er ýmislegt annað sem við vorum að vinna í sem að er ástæðan fyrir því að það gengur betur núna.“

Telma Ívarsdóttir hefur fengið mikið lof fyrir sína frammistöðu eftir að hún kom inn í lið Víkinga en burt séð frá því að Telma sé frábær markmaður hafa leikmennirnir fyrir framan hana byrjað að spila betur sömuleiðis. Aðspurður hvort það sé vegna þess að þeim líði betur inn á vellinum núna eftir markvarðarskiptin segir hann:

„Já, Telma er náttúrulega besti markmaður á Íslandi og það er skýtið ef við erum að fá á okkur mark með hana í markinu. Hinir nýju leikmennirnir okkar eru að koma sterkir inn, bæði á æfingar og í þessa leiki, við gerðum vel í glugganum.“

Framundan er neðri hlutinn, þrír sex stiga leikir, Víkingar hljóta að taka frammistöðu síðustu vikna með sér inn í þennan lokakafla:

„Já, við þurfum að gera það og ég hef fulla trú á því að við gerum það. Það er góður gangur á okkur, við erum að spila vel, þetta er ekki einhver heppni. Það er allt búið að vera á móti okkur á þessu ári, það er ekkert lið sem hefur lent verr í dómaramistökum en við en samt erum við hérna enn þá. Við eigum fullt af stigum inni og ég hef trú á því að við klárum þetta vel.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.