09.09.26 - 14:24
Elvar Geir Magnússon
Aron Elí: Fáum þetta sem kirsuberið á toppinn
Auglýsing

Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildarmeistararnir í Aftureldingu leika gegn Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á föstudagskvöld.
„Við erum búnir að ná stóra markmiðinu okkar með því að komast upp í Bestu deildina, við fáum svo þennan leik sem kirsuberið á toppinn," segir Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar.
Mosfellingar hafa góða reynslu af stórum leikjum og úrslitaleikjum á Laugardalsvelli.
„Þetta er þriðji úrslitaleikurinn okkar á fjórum árum. Það er svipuð stemning og aðkoma að leiknum eins og við þekkjum, okkur líður vel á Laugardalsvellinum."
Það eru ýmsar tengingar milli Afureldingar og Breiðabliks en sú sterkasta núna er að Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, er uppalinn hjá Aftureldingu og að auki bróðir þjálfara Mosfellinga, Magnúsar Más Einarssonar.
„Það er sterk tenging milli þessara félaga, fjölskyldubönd og margir leikmenn úr Mosó hafa spilað fyrir Breiðablik. Þetta verður mjög skemmtilegt einvígi."