Fotbolti.net
07.09.26 - 23:17
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Áslaug Dóra: Það er allt annar bragur á hópnum

Auglýsing
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, fyrirliði Víkinga

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, fyrirliði Víkinga

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

„Tilfinningin er virkilega góð,“ sagði Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, fyrirliði Víkinga, eftir mjög mikilvægan 1-2 sigur á Stjörnunni í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 Víkingur R.

„Loksins erum við að klára leikina. Við fáum á okkur mark og skorum frábært mark í lokin þannig að tilfinningin er virkilega góð og bara góðir þrír leikir sem við erum búnar að ná. Hefði viljað halda markinu hreinu í þessum leik en það kom ekki að sök þannig ég er bara mjög sátt,“ hélt hún svo áfram.

Hvernig metur hún frammistöðuna í leiknum í dag?

„Bara eins og í hinum leikjunum. Mjög skipulagðar, agaðar í varnarleiknum. Mér fannst aldrei vera einhver hætta, þær komust svona stundum í gegn en einhvernveginn vorum við bara með þetta.“

Telma Ívarsdóttir hefur komið feykilega vel inn í lið Víkinga og aðspurð hvað hún gefur þeim segir Áslaug:

„Ótrúlega mikið. Það gefur okkur varnarlínunni mikið öryggi, hún er mikill leiðtogi og hæðin í henni, hún er að taka þessa bolta ef að við erum ekki að ná þeim, þá getum við treyst á að hana.“

Sumarið hefur verið ansi þungt hjá Víkingsliðinu sem endar mótið fyrir skiptinguna í fallsæti. Þær hafa sótt þrjá sigra í röð núna, það hlýtur að vera aðeins léttara yfir hópnum en hefur verið:

„Já klárlega, það er, verð ég að segja, allt annar bragur á hópnum en við höldum áfram að vera jákvæðar og byggja ofan á það sem við erum að gera og þá erum við að fara að halda okkur uppi, hundrað prósent.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.