09.09.26 - 14:13
Kári Snorrason
Höskuldur: Verðum að leggja fortíðina til hliðar
Auglýsing

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður fær ekki mörg svona tækifæri og við ætlum að skilja allt eftir á föstudeginum," segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks.
Blikar eru að fara að mæta Aftureldingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli á föstudagskvöld. Þrátt fyrir að Afturelding sé deild neðar eru margir að spá þeim sigri.

„Hörkulið, stór kjarni sem hefur verið lengi saman. Þroskað og heilsteypt lið sem er líka með unga og spræka leikmenn. Þetta er verðugur andstæðingur á góðri siglingu."
„Það er engin værukærð eða vanmat hjá okkur. Við erum mjög hungraðir í þennan bikar, peppaðir og spenntir fyrir föstudeginum. Afturelding er afburðarlið í Lengjudeildinni og er á Bestu-deildar kaliberi."
Breiðablik hefur ekki unnið í sex deildarleikjum í röð og fengið mikla gagnrýni fyrir slaka frammistöðu. Margir telja að komandi bikarúrslitaleikur hafi tekið yfir huga leikmanna.
„Við höfum verið fastir í leiðinlegu mynstri og erum að moka okkur upp úr holu þar. Við verðum að ná andrými og leggja fortíðina til hliðar. Við höfum unnið okkur réttinn til að spila þennan einstaka leik," segir Höskuldur.