Fotbolti.net
09.09.26 - 13:55
Elvar Geir Magnússon

Magnús Már: Segir sig sjálft á hverjum pressan er

Auglýsing
Magnús Már: Segir sig sjálft á hverjum pressan er
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Sama hvert maður kemur í Mosfellsbæ er verið að tala um þennan leik. Við elskum úrslitaleiki og erum að koma hingað í þriðja sinn í fjórum árum í úrslitaleik. Við ætlum að skrifa annan kafla í fótboltasögu Mosó á föstudaginn," segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.

Mosfellingar mæta Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á föstudagskvöld. Magnús segir að reynsla Aftureldingar, sem vann Lengjudeildina, í því að spila stóra leiki komi liðinu og öllum í kringum það til góða í leinum.
„Við komum með mikið sjálfstraust inn í leikinn og höfum mikla trú á því sem við erum að gera. Þetta verður hörkuleikur, Blikar eru með gott lið, góðan þjálfara og góða leikmenn."

„Það hefur gengið frábærlega í miðasölunni hjá Mosfellingum og mér heyrist hálfur bærinn allar að fara á völlinn. Mér er sama hversu djúp tengingin er við Mosfellsbæ, hvort þú hafir verið að borða kryddbrauð með Svanþóri Einars á Pizzabæ fyrir 20 árum eða hvort þú sért nýfluttur í bæinn. Ég vil sjá alla hjálpa okkur í baráttunni."

„Það hefur gerst einu sinni að lið úr næstefstu deild hefur unnið bikarinn, það var 1971 (Víkingur). Átján árum áður en ég fæddist. Það segir sig sjálft á hverjum pressan er fyrir þennan leik."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Afturelding vann Lengjudeildina.

Afturelding vann Lengjudeildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.