Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 01. september 2014 13:08
Magnús Már Einarsson
Redknapp reynir að krækja í Sandro
Mynd: Getty Images
Það eru fáir sem elska lokadag félagaskiptagluggans meira en Harry Redknapp, stjóri QPR.

Harry er að sjálfsögðu að skoða leikmannamálin hjá sér og hann er að reyna að krækja í brasilíska miðjumanninn Sandro frá Tottenham.

Harry fékk Sandro til Tottenham á sínum tíma og hann vill nú fá leikmanninn til QPR.

Hinn 25 ára gamli Sandro er ekki inni í myndinni hjá Tottenham en hann hefur ekkert komið við sögu á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner