Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   fim 02. maí 2024 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Missir Chelsea bakvörðinn til Dortmund?
Mynd: EPA
Framtíð Ian Maatsen verður rædd í lok tímabils. Hann er á láni hjá Dortmund frá Chelsea út tímabilið.

Dortmund er sagt vilja kaupa leikmanninn. Í slúðurfréttum í vetur var sagt að enginn kaupmöguleiki væri í lánssamningnum og því þyrfti að ræða um kaupin frá grunni.

Maatsen framlengdi samning sinn við Chelsea um tvö ár áður en hann hélt til Dortmund. Í þeim samningi er riftunarákvæði sem gerir félögum kleift að kaupa bakvörðinn á 35 milljónir punda í sumar.

Maatsen er ánægður hjá Dortmund og vill skoða alla þá kosti sem eru í boði í sumar.

Hollenski vinstri bakvörðurinn, sem er 22 ára, fór á láni til Dortmund í jnaúar og hefur skorað tvö mörk í nítján leikjum með þýska liðinu. Á síðasta tímabili lék hann með Burnley í Championship deildinni.

Hann fékk átta í einkunn frá 90min fyrir frammistöðuna gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni. Dortmund leiðir einvígið 1-0 eftir heimaleikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner