Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 09. febrúar 2016 21:33
Alexander Freyr Tamimi
Þýski bikarinn: Dortmund og Werder Bremen áfram
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund og Werder Bremen tryggðu sér í kvöld áframhaldandi þátttöku í þýska bikarnum.

Dortmund vann rétt í þessu 3-1 útisigur gegn Stuttgart. Marco Reus kom Dortmund yfir snemma leiks en Lukas Rupp jafnaði metin rúmum stundarfjórðungi síðar.

Pierre-Emerick Aubameyang kom Dortmund síðan yfir á nýjan leik tíu mínútum síðar og undir lok leiksins gulltryggði Henrikh Mkhitaryan sigurinn.

Þá vann Werder Bremen 3-1 sigur gegn Bayer Leverkusen. Javier Hernandez kom Leverkusen yfir á 22. mínútu úr víti en Santiago Garcia og Claudi Pizarro sneru taflinu Werder Bremen í vil fyrir leikhlé.

Florian Grillitch kórónaði svo góðan sigur Werder Bremen, en Aron Jóhannsson var ekki með vegna meiðsla þó styttist í endurkomu hans.

Stuttgart 1 - 3 Dortmund
0-1 Marco Reus ('5)
1-1 Lukas Rupp ('21)
1-2 Pierre-Emerick Aubameyang ('31)
1-3 Henrikh Mkhitaryan ('90)

Bayer Leverkusen 1 - 3 Werder Bremen
1-0 Javier Hernandez ('22, víti)
1-1 Santiago Garcia ('31)
1-2 Claudio Pizarro ('42, víti)
1-3 Florian Grillitch ('82)

Athugasemdir
banner
banner
banner