Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
banner
   sun 12. nóvember 2017 15:38
Einar Kristinn Kárason
Sindri Snær: Evrópukeppnin mjög sterk fyrir ÍBV
Sindri Snær ásamt Jóni Ólafi Daníelssyni, nýráðnum aðstoðarþjálfara ÍBV og Magnúsi Steindórssyni, aka. Herra Axel Ó, úr knattspyrnuráði.
Sindri Snær ásamt Jóni Ólafi Daníelssyni, nýráðnum aðstoðarþjálfara ÍBV og Magnúsi Steindórssyni, aka. Herra Axel Ó, úr knattspyrnuráði.
Mynd: Einar Kristinn Kárason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri Snær Magnússon skrifaði rétt í þessu undir þriggja ára samning við bikarmeistaralið ÍBV.

Sindri Snær hefur verið lykilmaður frá því að hann gekk til liðs við ÍBV árið 2016 og bar hann fyrirliðabandið á síðasta tímabili. Hann er miðjumaður en getur einnig leyst af stöðu miðvarðar.

Óvíst var hvort Sindri yrði áfram í herbúðum liðsins en að hans sögn var aldrei spurning um hvort hann yrði áfram.

„Nei, í rauninni ekki. Við tókum smá tíma eftir tímabilið og kláruðum okkar mál. Mér hefur liðið vel hérna í tvö ár og það var engin hugmynd um það að fara að breyta því," sagði Sindri.

ÍBV hafa misst marga sterka leikmenn frá síðasta tímabili. Hugsaði Sindri sér aldrei að vera partur af þeim hópi?

„Nei, nei. Það hefur verið vaninn, því miður að leikmenn fari og komi oftar hér en hjá öðrum liðum. Það eiga fleiri leikmenn eftir að koma og við verðum með sterkt lið næsta sumar."

ÍBV endaði sem bikarmeistari síðasta tímabil en var í störukeppni við falldrauginn, eins og Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, sagði í sumar, fram í síðustu umferð. Liðið náði þó að halda sæti sínu í deild þeirra bestu. Var síðasta tímabil árángursríkt?

„Árángursríkt, já. Við erum eitt af fjórum liðum í Evrópukeppni í ár sem er mjög gott og mjög sterkt fyrir ÍBV. Í deildinni vorum við bara lélegir. Við björguðum okkur í síðustu umferð sem er ekki í lagi. Við teljum okkur betri en það en taflan lýgur aldrei," sagði Sindri.

Leikmenn ÍBV æfa bæði í Eyjum og á höfuðborgarsvæðinu en í desember hittast menn og þar verða markmiðin rædd.

„Fram að því erum við bara að slípa saman hópinn og safna saman liði. Það kemur í ljós sem allra fyrst en við ætlum að gera vel á öllum vígstöðum."

Er Sindri spenntur? „Ég er mjög spenntur. Ég hlakka til að koma hérna á nýju ári."

Viðtalið við Sindra Snæ má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner