Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. febrúar 2018 22:26
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Girona nálgast Evrópudeildina
Mynd: Getty Images
Girona 3 - 0 Leganes
1-0 Cristhian Stuani ('23, víti)
2-0 Portu ('36)
3-0 Juanpe ('85)

Girona hafði betur gegn Leganes í fyrsta leik helgarinnar í spænska boltanum.

Cristhian Stuani kom Girona yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik og tvöfaldaði Portu forystuna fyrir leikhlé.

Gestirnir fengu góð færi en komust ekki gegnum Bono í marki heimamanna.

Juanpe innsiglaði sigurinn á 85. mínútu með þriðja marki leiksins. Girona er aðeins tveimur stigum frá Sevilla í evrópudeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner