Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 19. maí 2018 07:10
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Lokauppgjör enska hringborðsins og Pepsi yfirferð á X977 í dag
Útvarpsþátturinn í dag 12-14.
Útvarpsþátturinn í dag 12-14.
Mynd: Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður í banastuði á X977 í dag laugardag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson stýra þættinum en hann verður með öflugu en einföldu sniði á morgun.

Í fyrri hluta þáttarins verður enska hringboðið á dagskrá. Kristján Atli Ragnarsson sérfræðingur um Liverpool og Tryggvi Páll Tryggvason sérfræðingur um Manchester United mæta.

Uppgjör tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og hitað upp fyrir tvo stórleiki; bikarúrslitaleik Chelsea og Manchester United og svo Meistaradeildarúrslitaleik Real Madrid og Liverpool.

Í seinni hluta þáttarins verður 4. umferð Pepsi-deildarinnar gerð upp og farið yfir alla leikina. Grétar Sigfinnur Sigurðarson verður með Elvari og Tómasi í þeim hluta.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner